15.10.2013 | 23:24
Eina skýjaða kvöldið valið?
Það var heiðskírt í gærkvöldi. Það var alskýjað og lágskýjað í kvöld. Annað kvöld er spáð heiðskíru.
Hvert þessara kvölda skyldi nú hafa verið valið til að myrkva götuljósin svo að norðurljósin sæust betur.
Kvöldið í kvöld !
Stórfengleg norðurljós - eða þannig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kannski "jók" hjá grínurunum !
Kæmi ekki á óvart.
Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 16.10.2013 kl. 00:00
Skyndilausnirnar voru ekki rétt valdar hjá Degi B. Eggertssyni í þetta skipti.
Hann er ekki sérlega næmur né veðurglöggur, hann Dagur. Ekki þennan daginn frekar en fyrri daginn. Hann hefði kannski átt að hringja í Trausta Jónsson áður en hann tók þessa skyndi-veður-ákvörðun.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.10.2013 kl. 00:02
Alveg eins hægt að slökkva götuljós annað kvöld eins og nú í kvöld.
Voðaleg neikvæðni er þetta.
Það má ekki einu sinni ákveða að gera eitthvað skemmtilegt til að sumir byrji strax að veina og kveina.
Menn ætluðu einnig að slökkva ljósin nú í kvöld í Kópavogi og á Seltjarnarnesi og ég veit ekki betur en að þau bæjarfélög séu undir stjórn Sjálfstæðisflokksins.
Þorsteinn Briem, 16.10.2013 kl. 00:14
Hver var að tala um pólitík Steini Briem.?
Aðalbjörn Þór Kjartansson (IP-tala skráð) 16.10.2013 kl. 00:43
"Hann er ekki sérlega næmur né veðurglöggur, hann Dagur."
Þorsteinn Briem, 16.10.2013 kl. 00:46
Norðurljósaspá Veðurstofu Íslands
Þorsteinn Briem, 16.10.2013 kl. 01:01
Vitlaus Dagur.
Guðmundur Ásgeirsson, 16.10.2013 kl. 01:31
Nýjasta nýtt hjá þeim þarna í henni Reykjavík, ... Spara rafmagnið, - slökkva rafljósin, spara og nota norðurljósin í staðinn, ... Flott, ... sparast hellingur af miljónum þar ???
Tryggvi Helgason, 16.10.2013 kl. 01:53
Það er mikill sparnaður fyrir þig að kveikja aldrei á perunni, Tryggvi Helgason.
Þorsteinn Briem, 16.10.2013 kl. 02:18
Útiljósin aldrei kveikir,
inni ætíð myrkur,
þurs er hann og þvörusleikir,
það er Tryggva styrkur.
Þorsteinn Briem, 16.10.2013 kl. 02:31
Vitlaus Dagur valinn.
Óli (IP-tala skráð) 16.10.2013 kl. 09:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.