25.1.2014 | 19:26
Góð stund á Skólavörðustígnum í dag.
Það var "gefandi" í þess orðs fyllstu merkingu og raunar í mörgum merkingum þess orðs, að vera viðstaddur opnun uppboðs verka myndlistarmanna í Galleríi Ófeigs við Skólavörðustíg, sem þeir gefa til að mæta kostnaði vegna baráttu Hraunavina fyrir vernd náttúru- og söguverðmæta Gálgahrauns.
Í dag eru þær fréttir í fjölmiðlum að ákæra eigi níu af þeim, sem voru í hrauninu 21. október síðastliðinn, og framganga yfirvalda af ýmsu tagi í þessu máli veldur vaxandi undrun.
Næstkomandi þriðjudag skýrist málið væntanlega frekar þegar svokölluð "fyrirtaka" verður framkvæmd í Héraðsdómi Reykjaness.
Listin borgar málskostnaðinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Í haust ei tóku höndum tveim,
háöldruðum köllum,
harkalega hentu þeim,
í Hverfissteininn öllum.
Þorsteinn Briem, 25.1.2014 kl. 19:52
Ég er mjög hissa hve litla athygli þessi frétt um ákærur nýrra níu menninga hefur vakið. Þetta er mjög hættuleg þróun og þar fyrir utan enn eitt brotið á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Greinilegt er að búið er að leggja línur um að ákæra í hvert sinn níu menn af handahófi úr hópi mótmælenda til að hræða fólk frá þátttöku í mótmælum.
Ef það eitt að hlíða ekki skipunum lögreglu er nóg til að gefa út kæru á hendur fólki er í raun búið að banna mótmæli á Íslandi, því ef lögregla skipar fólki að yfirgefa mótmælavettvang sem það gerir ekki þá getur lögreglan (samkvæmt þessu) handtekið einhverja níu að handahófi, stungið þeim í steininn og ákært fyrir brot á hlíðniskyldu við lögreglu.
Vill fólk búa í lögregluríki þar sem mannréttindi eru fótum troðin? Ef ekki endilega skrá ykkur í Hraunavini og styrkið þá í baráttunni gegn lögregluríkii á Íslandi.
Elín Erna Steinarsdóttir, 26.1.2014 kl. 00:03
Fotkastanlegt því að ákæra ætti stjórnvöld og verktakana fyrir yfirgang og algert skeytingarleysi gagnvart náttúruni okkar!
Sigurður Haraldsson, 26.1.2014 kl. 20:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.