27.1.2014 | 10:21
Velkominn til starfa.
Pólitísk togstreita um Ríkisútvarpið hefur verið allt of mikil allt frá stofnun þess. Flokkarnir hafa afsakað afskipti sín sitt á hvað, til dæmis með beitingu mismunandi meirihuta í útvarpsráði forðum tíð, með því að þeir væru setja sína menn inn til þess að koma í veg fyrir að þeir, sem "hinir" komu inn "misnotuðu aðstöðu sína."
Sem betur fer hafa útvarpsstjórarnir í sögu RUV hafið sig upp úr slíkum skotgröfum með undra fáum undantekningum í örfáum málum þennan langa tíma, miðað við það hve utanaðkomandi þrýstingur hefur oft verið mikill.
Það var úr miklu mannvali að spila við ráðningu útvarpsstjóra að þessu sinni og hefði þurft slys til að verða mislagðar hendur við það.
Sem betur ber ríkti einhugur um góða ráðningu og því ástæða til að bjóða Magnús Geir Þórðarson velkominn til vandasamra og mikilvægra starfa.
Magnús Geir ráðinn útvarpsstjóri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Magnús verður frábær útvarpsstjóri.
Magnús og Eyjólfur Laufdal
Þorsteinn Briem, 2.2.2014 kl. 10:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.