29.1.2014 | 01:16
Málfarslögreglumál?
Omega sýndi víst erlent myndefni í sex daga í fyrra án þess að birta íslenskt tal eða texta með því, og fjölmiðlanefnd, sem er nokkurs konar deild í málfarslögreglunni, hefur snuprað kristniboðssjónavarpsstöðina fyrir þetta:
Omega kastar ýmsu á glæ
og ekki er stöðin mjög hraust
ef of mikið gert er á þeim bæ
sem er alveg þýðingarlaust.
Misgörðin komst á svo magnað stig
að málfarslöggan varð æst
og án þess að þýða það signdi hún sig
og sagði: Djísús Kræst!
Omega braut gegn lögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekkert þýtt var á þeim bæ,
undarlegur fjandi,
hvað þar þýðir hi og bye,
heilagur þó andi.
Þorsteinn Briem, 29.1.2014 kl. 02:02
Ekta mál fyrir bloggheima. Því þar vilja menn, öðrum fremur, að geðþóttaákvarðanir ráði hvort tekið er á lögbrotum eða ekki. Spurningin er, og gaman verður að sjá, hvort Omega sé nægilega vinsæl til að verðskulda miskunn eða hvort heimtuð verði opinber aftaka.
Oddur zz (IP-tala skráð) 29.1.2014 kl. 02:09
Sæll.
Ríkiskassinn er galtómur og við erum að borga fyrir svona nefnd? Það á að leggja þessa nefnd niður sem allra fyrst enda fullkomlega gagnslaus.
Helgi (IP-tala skráð) 29.1.2014 kl. 05:01
Eru virkilega til innbyggjarar sem horfa á forheimskandi bullið í Omega?
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 29.1.2014 kl. 06:33
Margar óþarfar - Nefndir, ráð og stjórnir
Sum staðar eru starfsmenn færri en stjórnarmenn
jafnvel hjá undirstofnunum ráðuneyta þar sem stjórnir eru algjörlega óþarfar.
Grímur (IP-tala skráð) 29.1.2014 kl. 09:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.