6.5.2014 | 21:01
Frétt er góð sem endar vel.
Ísland komst í annað sinn í Eurovision síðast inn af tíu lögum kvöldsins. Röðin mun þó ekkert segja til um gengi einstakra laga. Ég er líka ánægður með að rússneska lagið og það hollenska komust inn.
Spennan var orðin svo mikil að í tengdri frétt á mbl.is á þessu augnabliki er fyrirsögnin sú að íslenska lagið hafi ekki komist áfram.
En síðan kemur upptalningin og þar sést að Ísland er síðast inn.
Má með sanni segja um þetta að frétt sé góð sem endar vel.
Ísland komst áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Átti ekki von á þessu en allt er gott sem endar vel. Fannst Monte Negro bera af.
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 6.5.2014 kl. 21:07
Tvíburarnir Anastasia og Maria syngja tíu ára á Rauða torginu um hina rússnesku Kötu (Vertu til er vorið kallar á þig)
Þorsteinn Briem, 6.5.2014 kl. 22:06
Var ágætlega gert hjá þeim.
Voru sterkari á sviðinu en eg bjóst við.
Texti og taktur komumst hnökralaust til skila.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 6.5.2014 kl. 22:37
Annað sinn síðast inn? Ég held að þetta sé 4. eða 5. sinn!
Skúli (IP-tala skráð) 7.5.2014 kl. 03:06
Rússneski þjóðsöngurinn með enskum texta
Þorsteinn Briem, 7.5.2014 kl. 22:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.