25.7.2014 | 15:42
Er óöruggt að fljúga eftir atburði síðustu vikna?
Svarið er nei vegna þess hve mörg ár hafa liðið með langtum minni slysatíðni en dæmi eru áður um í flugsögunni.
Þótt tvöfalt fleiri hafi farist i flugslysum síðustu sjö daga en allt síðasta ár, verður að draga frá það voðaverk að stór þota var skotin niður yfir Úkraínu.
Það slys flokkast á svipaðan hátt og eldsvoðar, sem kveiktir eru í húsum með vopnum og sprengjum og snerta ekkert almennt öryggi í húsum á friðartímum.
Segir samt öruggt að fljúga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Könnun meðal erlendra ferðamanna sem dvöldu hér á Íslandi veturinn 2011-2012 (frá september til maí):
- Tæplega helmingur (47,5%) svarenda var með há laun eða laun yfir meðallagi, um 41% með laun í meðallagi (samtals 88,5%) og um 11% með lág laun eða laun undir meðallagi.
- Helmingur svarenda var í stjórnunar- eða sérfræðistörfum, 13,1% í skrifstofu- eða þjónustustörfum, 10,1% voru nemar, 8,3% ellilífeyrisþegar eða heimavinnandi, 6% sérhæft starfsfólk eða tæknar og 12,1% í öðrum störfum.
Erlendir ferðamenn sem dvöldu hér á Íslandi veturinn 2011-2012 - FerðamálastofaÞorsteinn Briem, 30.7.2014 kl. 00:58
Eina raunverulega breytingin sem varð samkvæmt stjórnarskránni 1944 var að þá varð forseti þjóðhöfðingi Íslands í stað konungs.
"75. gr. ... Nú samþykkir Alþingi breytingu á sambandslögum Íslands og Danmerkur og skal þá leggja það mál undir atkvæði allra kosningabærra manna á landinu til samþykktar eða synjunar og skal atkvæðagreiðslan vera leynileg."
"Þó er óheimilt að gera með þessum hætti nokkrar aðrar breytingar á stjórnarskránni en þær sem beinlínis leiðir af sambandsslitunum við Danmörku ..."
Stjórnarskrá Konungsríkisins Íslands með síðari breytingum
Og gerðar hafa verið nokkrar breytingar á stjórnarskránni frá árinu 1944 án þess að þær hafi verið bornar sérstaklega undir þjóðaratkvæði.
Þorsteinn Briem, 3.8.2014 kl. 05:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.