11.12.2014 | 23:03
Hvert var stórslysinu forðað og hvar er það nú?
Það er hægt að forðast stórslys. Það er líka hægt að koma í veg fyrir stórslys. Það er hægt að forða fólki í burtu. En ef stórslysi var forðað eins og sagt er í tengdri frétt á mbl.is, hvert var því þá forðað?
Yfir Fjarðarheiði? Út á sjó?
Að forða slysi er bæði málvilla og rökvilla. Samt lifir þessi vitleysa góðu lífi.
Skjót viðbrögð komu í veg fyrir stórslys | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nú er gamla Framsókn feig,
forðast ekki slysin,
oft á þingi á sig meig,
allmjög nú er gisin.
Þorsteinn Briem, 12.12.2014 kl. 03:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.