12.7.2015 | 23:49
Rauf múr fordóma. Fegurð nyrðra og syðra.
Þegar Reynir Pétur Ingvarsson gekk hringveginn 1985 og hafði á undan heillað þjóðina upp úr skónum með framkomu sinni í Sjónvarpi þar sem hann vafði hálærðum háskólamenntuðum verkfræðingum um fingur sér í stærðfræði, rauf það í raun múr fordóma fólks gagnvart fólkinu á Sólheimum og öðrum svipuðum stofnunum hér á landi.
Hringurinn laðaði líka fram sérkenni og fegurð landshlutanna og sameinaði þjóðina.
Til að leggja áherslu á það bæti ég við myndum að sunnan í þessum pistli og á facebook, en myndir að norðan prýða pistil og facebook síðu fyrr í dag.
Myndirnar allar teknar í dag.
Reynir Pétur ruddi hringveginn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.