15.1.2016 | 07:20
Minnir á gamla sögu frá Sovéttímanum.
Margir þjófnaðir er frumlegir, bíræfnir og óvenjulegir, en með miklum ólíkindum er að stela heilum vegi eins og frést hefur að hafi gerst í Rússlandi.
Enn magnaðra er að hinn seki skuli hafa verið yfirmaður fangelsa á svæðinu.
Þetta minnir á beitta gamansögu frá tímum Sovétríkjanna um möguleikann á því að brjótast inn í Kreml daginn fýrir kosningar og stela úrslitunum.
Handtekinn fyrir að stela vegi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta minnir nú bara á lögregluna á Íslandi í dag. Réttast væri að strengja gulan borða utan um lögreglustöðuna en við höfum víst engan til að taka það verk að sér.
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 15.1.2016 kl. 08:23
Ekki hefur nú umferðin um veginn verið mikil, ef hægt er að dunda við það í heilt ár að plokka upp hellurnar.
Anna Dóra Gunnarsdóttir, 15.1.2016 kl. 14:13
Ég hef ekið eftir rússneskum vegum sem er svo illa á sig komnir að þeir myndu lítið breytast þótt yfirborðinu væri stolið.
Ómar Ragnarsson, 15.1.2016 kl. 16:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.