29.1.2016 | 09:48
Marghöfða norrænn dreki. Rauðhærða íslenska konan.
Ævintýra- Öskubuskulið Dags Sigurðssonar á möguleika á að komast í úrslit á EM á sunnudaginn og sömuleiðis undralið Norðmanna.
Fari svo eru fimm áberandi aðilar í pottinum varðandi úrslitaleikinn:
Danskir dómarar. Íslenskur þjálfari. Þýska liðið. Norska liðið og þjálfari þess.
Norðurlandabúar geta, ef allt gengur upp, leikið hlutverk marghöfða dreka til enda á EM, þar sem nýr haus sprettur upp í hvert skipti sem einn er höggvinn af.
Rómantísk huggun fyrir Íslendinga. Og minnsta kosti einn norrænn haus verður eftir: Dönsku dómararnir.
Ég minnist þess á árum áður að í stærstu og dýrustu hnefaleikabardögunum var stundum kallað á lækni til að skera úr um það, hvort jafnokar Tysons og Holyfields væru bardagahæfir vegna meiðsla.
Þessi læknir réði á því augnabliki úrslitum um bardagann og milljarðana sem í húfi voru.
Þetta var rauðhærð kona af íslenskum ættum og þjóðarstoltið streymdi um okkur Bubba!
Danir í úrslitaleiknum á EM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.