17.2.2016 | 14:37
Alltaf koma menn af fjöllum sem fá laun í samræmi við "ábyrgð."
Í íslenska banka- og efnahagskerfinu virðist gilda ein meginregla, að bankinn, bankastjórarnir og yfirmenn fjármálafyrirtækja hafi ævinlega tryggingu fyrir því að þurfa aldrei að taka ábyrgð á því sem aflaga kann að fara.
Miðað virðist við það að ævinlega fái fjármálakerfið sitt, en að fari eitthvað úrskeiðis, sitji lántakendur, viðskiptamenn eða ríkið uppi með tapið.
Í þessu kerfi skammta yfirmenn sér ofurlaun á þeim forsendum að þeir beri svo mikla og þunga ábyrgð.
Ef vel gengur er þrýst á um bónusa, arð og launahækkanir langt úr takti við launakerfið í þjóðfélaginu.
Ef illa gengur hverfur hins vegar talið um ábyrgðina og aðrir en stjórnendurnir, í þessu tilfelli banki í almannaeigu og almenningur, verða að taka á sig skellinn, sem felst í því að láta utanaðkomandi aðila eða braskara, sem kunna tökin á því að sópa til sín milljarða verðmætum í gegnum einkavæðingu, hlunnfara seljendur.
Þessir vernduðu stjórnendur koma af fjöllum varðandi það sem er að gerast á þeirra vakt og þrýstingurinn á hærri ofurlaun vex bara.
Þetta er það vitlausasta sem við höfum gert | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.