21.2.2016 | 16:30
"Gamli-Ótryggur" eða "Gamli í dái"?
Allir goshverir heims bera alþjóðaheitið "Geysir". Það tekur oft langan tíma að fá útlendinga til þess að meðtaka þá staðreynd að um goshveri heims gildir svipað og um keisara heims, sem allir bera samheitið "Kesar" eða "Sesar".
Eftir að Evrópubúar enduruppgötvuðu Ameríku endanlega kom í ljós, að í Klettafjöllum var jafnoki Geysis í Haukadal, sem var svo reglusamur, að hann fékk heitið "Gamli-Tryggur" ("Old Faithful") og hefur ekki brugðist því trausti sem í nafninu felst síðan.
Fyrstu áratugi síðustu aldar gaus Geysir fyrir konunga og aðra gesti, sem til landsins komu, en með æ lengra millibili, þannig að frekar gefa honum mátt honum viðurnefnið "Gamli-Ótryggur".
Lengi vel var hægt að koma honum til með því að bera í hann sápu til að létta vatnsfargið, en áfram hrakaði heilsu hans.
Um og upp úr miðri síðustu öld var hann fallinn í dá, en með því að saga rauf í barm hans og bera í hann sápu og leyfa Hrafni Gunnlaugssyni að taka kvikmynd af Geysisgosi, var honum haldið um hríð í nokkurs konar öndunarvél hvað snerti það að hjálpa honum til að gjósa.
Upp úr miðjum tíunda áratugnum gaus hann nokkrum sinnum, en hefur nú verið í dái í tæplega tvo áratugi.
Það er aðeins til einn ósvikinn Geysir á jörðinni þótt aðrir goshverir beri nafn hans.
Þess vegna er það eftirsóknarvert að sjá hann gjósa. En til að seðja hungur ferðamanna, sem koma á svæðið og verða hugsanlega yfir ein milljón á næsta ár, bjargar Strokkur málum, enda býður hann upp á miklu fleiri gos en Gamli-Tryggur í Yellostone.
Á meðan þannig er komið málum verður fyrrum mikilfenglegasti og frægasti goshver heims að sætta sig við forna frægð eina saman, líkt og Schumacher kappakstursmeistari.
Geysir gaus af sjálfsdáðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Síðastliðinn þriðjudag:
Erlendir ferðamenn hér á Íslandi í fyrra, 2015, voru um 1,3 milljónir, 1.289.140, en voru um ein milljón, 997.556, árið 2014.
Fjölgunin á milli ára nemur 291.584 ferðamönnum, eða 29,2%.
Þar fyrir utan eru farþegar með skemmtiferðaskipum, um eitt hundrað þúsund, 100.141, komu til Reykjavíkur í fyrra með 108 skipum.
Um 30% fleiri erlendir ferðamenn hér á Íslandi í fyrra en árið 2014
Þorsteinn Briem, 21.2.2016 kl. 17:25
Árið 2012 fóru 72% erlendra ferðamanna að Geysi að sumri til (júní, júlí og ágúst) en 61% að vetri til.
Og miðað við þær tölur fór tæp ein milljón erlendra ferðamanna að Geysi í fyrra, 2015.
Og ár hvert fara einnig margir Íslendingar að Geysi.
Þorsteinn Briem, 21.2.2016 kl. 17:41
Um 3,4 milljónir manna heimsóttu Yellowstone-þjóðgarðinn í Bandaríkjunum árið 2012 en garðurinn var stofnaður árið 1872 og ég veit ekki betur en að hann sé í góðu lagi.
Yellowstone National Park
"Hann var það, Steini, þegar ég kom þangað 2008."
Ómar Ragnarsson, 20.3.2013
Þorsteinn Briem, 21.2.2016 kl. 17:45
Síðastliðinn miðvikudag:
"Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að umræðan um fjármögnun innviða ferðaþjónustunnar sé á villigötum.
"Hvernig stendur á því að stjórnmálamenn velti fyrir sér af hverju þurfi að eyða fjármunum í ferðaþjónustuna?," spurði hún á fundi sem Íslandsstofa boðaði til í morgun um samstarf og markaðssetningu erlendis á árinu 2016.
Helga sagði að stjórnmálamönnum ætti að vera ljóst að um góða fjárfestingu sé að ræða sem muni skila sér margfalt til baka.
Hún nefndi að innan 15 ára geti gjaldeyristekjur Íslands í ferðaþjónustunni numið svipaðri tölu og heildargjaldeyristekjur þjóðarinnar eru í dag.
Einnig sagði Helga að áætlað sé að gjaldeyristekjurnar í ferðaþjónustunni hafi aukist um 100 milljarða króna frá árinu 2013 til 2015.
"Stundum finnst mér eins og stjórnmálamenn séu ekki tilbúnir til að samþykkja þennan nýja veruleika," sagði hún.
"Það þarf að byggja upp innviði fyrir þessa atvinnugrein eins og aðrar.
Uppbyggingin nýtist okkur öllum vel.""
Umræðan um fjármögnun innviða ferðaþjónustunnar er á villigötum - Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
Þorsteinn Briem, 21.2.2016 kl. 17:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.