9.3.2016 | 22:10
Elanor Rigby og Yesterday.
Í minningunni eru Elanor Rigby og Yesterday lögin, sem mörkuðu þáttaskil í þroska- og þróunarsögu Bítlanna. Það var einstök upplifun að heyra þessi lög í fyrsta sinn og spila þau aftur og aftur.
Ef þeir John, Paul, George og Ringo voru fjórir fætur á gæðingi, var George Martin knapinn, sem laðaði fram úr þeim gangtegundirnar sem gerðu þennan gæðing svo einstakan, - breytti hljómsveit gítar- bassa- og trommuleikara, sem í upphafi mátti líkja við hest, sem aðeins brokkaði og stökk, í alhliða gæðing jafnvígan á allar gangtegundir.
Bítlarnir hefðu hljómað öðruvísi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála Ómar!
Jónas Ómar Snorrason, 10.3.2016 kl. 06:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.