17.4.2016 | 02:54
"Nú er besta barnið sótt..."
Einu sinni kom fram sú hugmynd að karlkyns NóbelsverðlaunahafaR legðu skerf í flottasta sæðisbanka heimS.
Viðeigandi er að segja um þessa hugmynd að hún var andvana fædd, enda svolítið keimlík hugmyndum nazista um ræktun á yfirburðakynslóð aría.
Fyrir rúmu 40 árum sendu Svíar okkur árlega sjónvarpsþátt þar sem Nóbelsverðlaunahafar létu ljós sitt og vitsmuni skína í viðtalsþætti.
Þátturinn bar nafnið "Snillerne spekulerer."
Þátturinn fékk arfa slakt áhorf og sem ritstjóri dagskár lagði ég til við dagskrárstjórana í Sjónvarpinu að þeir kæmu þeirri hugmynd á framfæri við Svía, til þess að auka áhorfið. að í staðinn yrði gerður sjónvarpsþáttur þar sem fylgst yrði með snillingunumm í viðskiptum þeirra við sæðisbanka sinn.
Gæti sá þáttur heitið "Snillerne onanerer"
Féll sú hugmynd í vægast sagt grýttan jarðveg.
Nokkrum árum síðar var það forsíðufrétt í DV að íslensk kona lét afar vel af skiptum sínum við danskan sæðisbanka.
Þá kastaði séra Emil Björnsson frétta- og dagskrárstjóri fram þessari stöku:
Hreðjum Íslands hrakar ótt /
hermir konan unga. /
Nú er besta barnið sótt /
beint í danska punga.
Sögðu sæðisgjafann snilling | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ómar áttar sig ekki á alvarleika málsins.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 17.4.2016 kl. 09:02
Jú, það geri ég, þótt ég nálgist það í hálfkæringi til að varpa ljósi á fáránleika þess að fara út í grundvallaratriði tilurðar hverrar manneskju eins og það sé alveg sjálfsagt mál, hvernig það er gert.
Ómar Ragnarsson, 17.4.2016 kl. 14:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.