8.6.2016 | 07:29
Dýru verði keypt?
Sigur Hillary Clinton í forkosningum Demókrata er sögulegur í sögu Bandaríkjanna og nú vantar aðeins þrjú atriði upp á að fjölbreytni bandarísks þjóðfélag hafi birst í öllum myndum sínum, kona forseti, svört kona forseti, svört kona en ekki kristinnar trúar forseti.
Sammy Davis yngri talaði um svartan forseta fyrir hálfri öld og uppskar hlátur. Varð þó sannspár.
Hið eina, sem varpar vafa á þennan áfanga er það, að vegna þess að engin takmörk eru fyrir því hve miklum peningum má eyða í kosningabaráttu vestra, er hætta á að viðkomandi verði háður hinum ríku stuðningsmönnum sínum, einstaklingum, félögum og stórfyrirtækjum.
Það þarf þó ekki að vera regla. Það voru til dæmis ríkir menn í Louisville sem fjármögnuðu feril Muhammads Alis og hann lét slíkt aldrei hafa áhrif á sig.
Í frétt mbl.is segir, að Clinton hafi sigrað forkosningarnar í New Jersey. Lífseig málvilla og rökvilla virðist ódrepandi.
Ef einhver sigrar kosningar hafa kosningarnar beðið ósigur. Það gengur ekki upp.
Söguleg stund fyrir konur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það yrði dýru verði keypt, ef fósturdeyðingasinninn mikli Hillary Clinton yrði næsti forseti Bandaríkjanna. Sbr. hér:
Hillary Clinton er enginn málsvari ófæddra fremur en Barack Obama
Jón Valur Jensson, 8.6.2016 kl. 11:25
Diplómatíska Hitlerskommentið hennar var skemmtileg upphitun. Hvít kellíng sem ætlar í slag við hvítan kall getur líka kallað fram bros hjá einhverjum.
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 8.6.2016 kl. 11:51
"Í Kristnum stjórnmálasamtökum eru 15 manns."
Jón Valur Jensson, 9.8.2014
Þorsteinn Briem, 8.6.2016 kl. 13:42
Very rich is Donald Trump,
not as smart as Forrest Gump,
a big fool,
never cool,
finally they will him dump.
Þorsteinn Briem, 8.6.2016 kl. 13:44
23.3.2016:
"Meirihluti Íslendinga myndi kjósa Hillary Clinton sem næsta forseta Bandaríkjanna ef þeir hefðu kosningarétt í landinu eða 53%.
Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar Maskínu.
Rúmlega 38% myndu hins vegar kjósa keppinaut hennar um að verða forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, Bernie Sanders.
Þá myndu 4-5% styðja auðkýfinginn Donald Trump sem notið hefur mests fylgis í forvali Repúblikanaflokksins."
Einungis um 5% Íslendinga myndu kjósa Donald Trump
Þorsteinn Briem, 8.6.2016 kl. 13:45
https://www.youtube.com/watch?v=OhIy0Dkaxxk
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 8.6.2016 kl. 13:56
Nei, það eru 17 manns í Kristnum stjórnmálasamtökum. En "Steini Briem" er líklega fósturdeyðingasinni eins og Cinton-hjónin og Obama; þessu fólki er alveg sama um hnignun vestrænna ríkja og virða ekki kristin siðaboð -- (oft) strangar reglur, sem setja okkur stólinn fyrir dyrnar, en eru þó mannlegu samfélagi til góðs, þegar til lengri tíma er litið.
Jón Valur Jensson, 9.6.2016 kl. 17:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.