9.6.2016 | 07:28
Sérkennilegt ástand á þessu sviði afbrota.
Ég hef nokkrum sinnum orðið fyrir því að stolið hefur verið frá mér verðmætum á býsna óvenjulegan hátt og jafnvel ótrúlega bíræfinn.
Í öll skiptin hef ég ekki aðeins leitað til lögreglunnar heldur reynt að upplýsa málin sjálfur.
Ég var svo nálægt því að upplýsa bíræfinn þjófnað á bíl mínum af stæði á bílasölu fyrir nokkrum árum, að ég var með nöfn viðkomandi í hendi.
En fingrafar, sem gat orðið lykilatriði í málinu, reyndist ekki alveg nógu skýrt.
Og stuldurinn á bakpoka mínum inni í sjálfum Landsbankanum, aðalbanka, sl. haust, með fjölda vitna í návist öryggisvarðar og með skýrri mynd í öryggismyndavél, var sérstaklega bíræfinn en er samt óupplýstur.
Það, sem er athyglisverðast, finnst mér hve furðu margir virðast þekkja hina ýmsu afkima og afbrigði í "undirheimunum" ótrúlega vel.
Sérhæfing þjófa og þjófagengja virðist vera mikil.
Og við ófullkomnar kannanir mínar hefur komið í ljós, að það skolast til manns ýmis konar vitneskja eftir óhefðbundnum leiðum, ef nota má það orð.
Ekki síst virðist þetta eiga við í fíkniefnaheiminum.
Um þetta gildir viðkvæði við brag, sem Brynjólfur Jóhannesson flutti hér í gamla daga:
Svona gengur það /
og svona er það. /
Allir vita það /
en enginn sér það.
Mál gegn lögreglumanni fellt niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Furðulegt innanhúsmál lögreglu. Sagt er að maðurinn hafi verið í einelti innan lögreglu eða voru aðferðir lögreglumannsins gagnrýnisverðar?
Hvenær má beita óhefðbundnum leiðum? Mál 214, Guðmundar og Geirfinnsmálið óútkljáða byrjaði með óhefðbundnum leiðum. Tilgátum og síðan bætt við í það endalausa af þeim er rannsökuðu.
Nálgun þín er óhefðbundin og ekki komið að efninu.
Sigurdur Antonsson (IP-tala skráð) 9.6.2016 kl. 08:35
Sama má segja um læknadópið sem flæðir hér um allt. Það dettur þó engum í hug að setja lækna á bak við lás og slá enda eru þeir svo óskaplega mikið menntaðir. Sérhæfðir og löggiltir dópsalar sem sjá um uppþurrkun og uppdópun alka á kostnað ríkisins. Þetta er náttúrulega bara brandari. Síðan á að refsa einhverjum einum lögreglumanni? Þetta minnir á skyndilega og asnalega umræðu vinstri manna um Írak núna. Þeir hamra á þessu Írak Írak en Nató er áfram heilaga beljan þeirra.
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.6.2016 kl. 09:59
Svo er líka sérkennilegt að sumir þurfa að sitja inni á meðan aðrir þurfa alls ekkert að sitja inni. Væri ekki hægt í nafni vestrænnar samvinnu, samkeppni og samvinnu stéttanna að gefa fólki kost á að afla sér einhverra tekna á þessu sviði? "Tek að mér að sitja inni fyrir fólk." Er það nokkuð svo galið?
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.6.2016 kl. 11:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.