5.7.2016 | 15:03
5:3 hefði verið skárra en 5:2.
Ef bolti fer í hönd leikmanns inni í vítateig svo að hann breytir um stefnu og þar með gangi leiksins, ber að dæma vítaspyrnu.
Skiptir þá engu þótt um óviljaverk sé að ræða.
Í því tilfelli sem hollenski dómarinn dæmdi ekki vítaspyrnu á franskan sóknarleikmann vegna þess að boltinn fór í framhandlegg hans og breytti ekki um stefnu, hélt Frakkinn hendinni frá sér.
Ef hann hefði haldið henni þétt að líkamanum hefði boltinn í fyrsta lagi ekki farið í höndina og í öðru lagi hefði ekki ekki verið dæmd hendi.
Að vísu er ekki 100% gefið að Gylfi Þór hefði skorað úr vítaspyrnu en hann er nú samt afburða góð vítaskytta.
5:3 úrslit hefðu verið mun skárri en 5:2.
Og enn á eftir að sjá hvort annað lið en það íslenska á eftir að skora fleiri mörk hjá hinum firnasterku Frökkum.
Dómarinn sendur heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.