21.9.2016 | 01:11
Svartur blettur á sögu þjóðarinnar.
Óhæfuverk sjóræningja frá Alsír, sem ranglega voru kallaðír Tyrkir hér á landi og illvirki þeirra, Tyrkjaránið svonefnda, hafa í bráðum fjórar aldir skyggt á ekki minni glæpaverk okkar sjálfra, sem fólust í því að hundelta og drepa á hroðalegan hátt fjölda Baska, sem ekkert illt höfðu gert af sér, sem réttlæti slíka villimennsku og drápsæði, sem birtist í þessum viðbjóðslegu morðum.
Glæpunum í Tyrkjaráninu hefur eðlilega haldið á lofti og samið um það leikritið Tyrkja-Gudda auk endurtekinna skrifa og ummæla, en Spánverjavígin svonefndu, sem eru líklega einhver svartasti blettur í sögu þjóðarinnar, fá nú loksins umfjöllun sem fyrir langalöngu var orðin tímabær.
Gerir mynd um morðin á Böskum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég tengi Spánverjavígin alltaf við komu enskra víkinga til Vestmannaeyja 1614. Sú heimsókn var e.k. upphitun fyrir Tyrkjaránið.
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 21.9.2016 kl. 07:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.