15.10.2016 | 23:11
Nýjar og stórhættulegar brautir.
Togstreita stórveldanna er að þróast út á nýjar og stórhættulegar brautir vegna nýrrar og breyttrar tækni á mörgum sviðum, einkum tölvutækni og þróunar nýrra og meðfærilegra vopna, sem skapa alveg nýja hernaðaraðstöðu.
Einkum eru ný og smærri kjarnorkuvopn áhyggjuefni og ávísun á slys og mistök, sem geta reynst miklu dýrkeyptari á okkar tímum en áður var.
Vænisýki og tortryggni vaða uppi og spretta úr jarðvegi óvissu um getu og fyrirætlanir mótherjans.
Afar litlu munaði 1983 að bilun í tölvukerfi og hugsanleg mistök í ákvarðanatöku í kjölfarið leiddi til gereyðingarstríðs.
Á þessari bloggsíðu hefur ítrekað verið bent á undanfarin ár að þetta er óviðunandi ástand og skelfilegasta hættan sem steðjar að mannkyninu.
Fordæmalausar hótanir Bandaríkjanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Við ætlum að drepa þig Pútín eins og Gaddafi. Það eru skilaboðin. Svona tala vonarstjörnur íslenskra vinstri manna sem settu íslenskan almenning í þrælahlekki og þykjast nú hafa áhyggjur af þrælahaldi í heiminum. Hræsnin getur bókstaflega drepið fólk.
https://www.youtube.com/watch?v=vqYJRc0TJkQ
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 16.10.2016 kl. 08:58
Í dag:
Viðreisn vill ekki mynda ríkisstjórn með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum
Þorsteinn Briem, 18.10.2016 kl. 18:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.