28.10.2016 | 13:42
Ríkisstjórn flokkanna fjögurra inn og út í skoðanakönnunum.
Fyrir kosningarnar 2007 ríkti spenna varðandi það hvort þáverandi stjórnarflokkar, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur gætu haldið áfram stjórnarsamstarfi.
Alla kosningabaráttuna var mjótt á munum og svo mjótt var það á endanum, að Framsóknarflokkurinn tapaði svo miklu og stjórnarflokkarnir fengu samanlagt svo nauman meirihluta að þeir treystu sér ekki til að halda áfram.
Og stjórnarandstöðuflokkarnir voru í naumum minnihluta.
Niðurstaðan varð því stjórnarmynstur tveggja stærstu flokkanna, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
Núna virðst stjórnarflokkarnir eiga litla möguleika á að halda velli, hvað þá að ná tryggum meirihluta á þingi.
Ef svo á að verða, yrði Björt framtíð og Samfylking að detta niður fyrir 5% þröskuldinn og fylgi þeirra þar með að detta dautt niður.
Eins og 2007 getur stefnt í annað stjórnarmynstur en annað hvort núverandi stjórnarflokka eða núverandi stjórnarandstöðuflokka.
Þetta verður spennandi.
Sjálfstæðisflokkurinn fær 24,7% hjá MMR | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sjallastjórnin liðið lík,
lítil er nú fórnin,
pilsfaldanna pólitík,
plebbaleg var stjórnin.
Þorsteinn Briem, 28.10.2016 kl. 18:53
Góður Steini Briem!
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 28.10.2016 kl. 19:33
Skrítið hvað jafnaðarmönnum gengur illa að ná til plebbanna - og þó ekki.
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 28.10.2016 kl. 21:10
Það er rétt Elín ..þú ert ósnertanleg
Ragna Birgisdóttir, 28.10.2016 kl. 22:57
Viðhorf jafnaðarmanna til almennings er sérstakt rannsóknarefni. Þeir reyndu að hneppa 460 verkamenn í skuldaánauð 1926 og þurfti dóm til að losa mennina úr klónum á þeim. Smári McCarthy heldur uppi merkinu þegar hann segist vilja 40-50% atvinnuleysi. Þessi mannfyrirlitning virðist vera rauður þráður í starfi jafnaðarmanna. Hvað veldur?
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 29.10.2016 kl. 08:40
Þarna höfum við ástæðuna fyrir klofningi á vinstri kantinum. Jafnaðarmenn vildu þræla á meðan aðrir vildu eitthvað allt annað.
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 29.10.2016 kl. 10:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.