5.12.2016 | 21:23
Gömul staka rifjast upp: "Æðstu menn alveg sér gleyma..."
Við að fylgjast með umræðum um hæstaréttardómara rifjast upp staka, sem varð til hér um árið, þegar í ljós kom að handhafar forsetavalds höfðu sankað að sér tollfrjálsu áfengi í svo miklu magni, - í hundraðatali, - þegar forsetinn fór til útlanda, að þáverandi forseti hæstaréttar sagði af sér og forseti Alþingis var í vanda með að útskýra fjölda flasknanna sem höfðu ratað til hans.
Þá varð þessi vísa til.
Æðstu menn alveg sér gleyma, - /
áfengi hamstra og geyma, - /
en fengju sér færri /
flöskur og smærri /
ef Vigdís hún væri´alltaf heima.
Segja Markús ekki hafa farið að reglum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Á myndinni má sjá að gaurinn er með orðu eða kross um hálsinn. Veit einhver fyrir hvaða "framlag." Þó varla fyrir stórtæk áfengiskaup eða brask með hlutabréf.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 5.12.2016 kl. 22:55
Margt er hér nú þras og þref,
þykir öfund gjöful,
í Helvíti á hlutabréf,
hver sinn dregur djöful.
Þorsteinn Briem, 6.12.2016 kl. 02:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.