9.3.2017 | 23:49
16 ampera þröskuldurinn.
Á dögunum var ég ásamt Gísla Sigurgeirssyni, sérfræðingi um rafknúin farartæki, að kanna núverandi möguleika á því að aka hringveginn á rafmagnsbíl, meðan nógu margar hleðslustöðvar eru ekki komnar.
Spurningi var hversu víða væri hægt að aka um veginn með því að fá að stinga bílnum í samband við rafmagn á heimilum eða í fyrirtækjum og fá að hlaða hann þar og bíða í þær 6-7 klukkustundir, sem þyrfti.
Bíllinn, sem við notuðum til viðmiðunar, þarf að komast í rafmagn, þar sem rafkerfi viðkomandi húss þolir 16 amper. En það er alls ekki gefið, og þarf að kanna sérstaklega fyrirfram þá staði, þar sem komast þyrfti í rafmagn.
Að þessu leyti er talan, sem nefnd er í tengdri frétt á mbl.is, 10-16 amper, þess eðlis, að það getur skipt öllu hvor talan, 10 eða 16 ampera útsláttaröryggi er í gildi þar sem hlaða þarf.
Í hitteðfyrra fóru tveir menn á rafbíl til Ísafjarðar frá Reykjavík og var það fjarri því að vera áhlaupaferð vegna erfiðleika á að komast með bílinn í venjulega hleðslu.
Þeir urðu að hlaða bílinn um borð í Breiðafjarðarferjunni Baldri og nota þar með orku jarðefnaeldsneytisa aflvélar skipsins á þeim hluta ferðarinnar. Að þessu leyti hefur því ekki enn verið farið á rafbíl frá Reykjavíkur vestur á Ísafjörð fyrir rafafli eingöngu.
Í þjóðvegakerfi landsins eru víða ansi langar vegalengdir á milli byggða. Má nefna leiðina frá Gufudalssveit vestur í Vatnsfjörð á Vestfjarðahringveginum og leiðina milli Möðrudals á Fjöllum og Skjöldólfsstaða á Jökuldal á þjóðvegi nr.1.
Ef 16 ampera möguleiki er ekki fyrir hendi á endastöðvum byggðanna, er spurningin hve langt þarf að fara að auki til að komast í nothæfa hleðslu og hvort og hve víða í þjóðvegakerfi landsins 16 ampera þröskuldurinn er fyrir hendi.
Ég hafði ekki tíma til að byrja úthringingar út um allar trissur í lauslegri athugun á dögunum og sennilega verður því enn bið á því að fært sé um allt land á hvaða rafbíl sem er.
Setja upp 58 hleðslustöðvar í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það væri nú harla einkennilegt ef ekki væri hægt að hlaða rafbíla á hleðslustöðvum fyrir rafbíla.
Þorsteinn Briem, 10.3.2017 kl. 00:08
Ekki fyrr en þær eru komnar. Pistillinn fjallar um ástandið nákvæmlega núna, möguleika þess að komast um þjóðleiðirnar með því að fá að hlaða utan hleðslustöðva, svipað og sumir geta gert heima hjá sér.
Verkefnið var að athuga lauslega möguleikana á því að aka Mitsubishi iMiev frá Egilsstöðum til Reykjavíkur strax núna.
Ómar Ragnarsson, 10.3.2017 kl. 00:42
Í gær:
"Orka náttúrunnar (ON) og N1 ætla í sameiningu að reisa hlöður fyrir rafbíla meðfram helstu þjóðvegum landsins.
Stjórnendur fyrirtækjanna hafa skrifað undir samkomulag um að hlöður ON rísi á afgreiðslustöðvum N1 víðs vegar um landið.
ON hefur þegar reist þrettán hlöður fyrir rafbíla í samstarfi við ýmsa aðila, þar á meðal N1."
"ON hefur einnig aukið mjög upplýsingagjöf til rafbílaeigenda með útgáfu smáforritsins ON Hleðsla fyrir Android og iPhone.
ON Hleðsla veitir meðal annars upplýsingar um vegalengd í næstu hlöðu, hvar hún er, hvaða hleðslubúnaður er í henni og hvort hún er laus eða upptekin.
Í tilkynningu segir að N1 reki 95 stöðvar á landinu og þar með víðtækustu þjónustu hér landi fyrir bifreiðaeigendur."
"Um 20 mínútur tekur að hlaða rafbíl og mikilvægt fyrir ökumann og farþega að geta slakað á í notalegu umhverfi og fengið sér kaffibolla eða aðra hressingu á meðan bíllinn er í hleðslu."
Orka náttúrunnar (ON) og N1 með hleðslustöðvar fyrir rafbíla við þjóðvegi landsins
Þorsteinn Briem, 10.3.2017 kl. 00:56
Síðastliðinn föstudag:
"Vegna ársins 2016 styrkti Orkusjóður sex aðila um 66,7 milljónir króna til að setja upp sautján hraðhleðslustöðvar og þrjár minni á eftirtöldum stöðum:
Skjöldólfsstöðum, Bláa lóninu, Landeyjahöfn, Vestmannaeyjum, Egilsstöðum, Höfn, Staðarskála, Fáskrúðsfirði, Djúpavogi, við Jökulsárlón, í Skaftafelli, Kirkjubæjarklaustri, Vík, Hellu, Flúðum, Geysi í Haukadal, Hveragerði, Blönduósi, Varmahlíð og Reykjahlíð.
Vegna ársins í ár hafa tíu aðilar verið styrktir um 66 milljónir króna til að setja upp sextán hraðhleðslustöðvar og tvær minni:
Garðabær, Hafnarfjarðarbær, Isavia, N1, Olíuverslun Íslands, Orka náttúrunnar (ON), Orkubú Vestfjarða, Reykhólahreppur, Skeljungur og Vistorka.
Loks hefur Orkusjóður ákveðið að styrkja tólf aðila til að setja upp níu hraðhleðslutæki og 58 minni.
Þar af er Reykjavíkurborg styrkt til uppsetningar á þrjátíu minni hleðslustaurum víðs vegar um borgina.
Sex hraðstöðvarnar af níu verða settar upp í Reykjavík á vegum Orku náttúrunnar, Olíuverslunar Íslands og Skeljungs.
Á þessu lokaári styrktarverkefna Orkusjóðs verða auk þessa settar upp tólf hleðslustöðvar víða á Austurlandi, ein í Grindavík, þrjár í Mosfellsbæ, á Húsafelli, Reykholti, við Seljalandsfoss, í Norðurfirði á Ströndum, þrjár á Selfossi, ein á Stokkseyri, Eyrarbakka, Raufarhöfn, við Dettifoss, á Laugum, Skagaströnd og Dalvík."
Þorsteinn Briem, 10.3.2017 kl. 01:28
Í gær:
"Í ys og þys bæjarlífsins á Sauðárkróki bruna misháværir bílar eftir Skagfirðingabrautinni en einn sker sig þó úr með afgerandi hætti, rafsendibíllinn sem veitingaþjónustan Grettistak gerir út."
"Eiður Baldursson, annar eigenda Grettistaks, keypti nýjan rafsendibíl úr verksmiðjum Nissan, E-NV200, í millistærðarflokki.
Eiginþyngd sendibílsins er 1.641 kíló, lengdin rúmir 4,5 metrar og breiddin rétt rúmir 2 metrar með spegla úti."
"Eiður segir að rafsendibíllinn hafi reynst vel í þau tæpu tvö ár sem fyrirtækið hefur haft bílinn í sinni þjónustu.
"Við erum að keyra þrjátíu til fjörutíu kílómetra að jafnaði á dag og þá þurfum við ekkert að stinga sendibílnum í hleðslu nema yfir nóttina.
Við höfum verið með veislur í Varmahlíð og getum farið á bílnum þangað."
"Rekstrarkostnaðurinn er nær enginn og bifreiðagjöldin um sex þúsund krónur á ári.
Maður finnur helst að drægnin minnki þegar frostið fer í tíu stig."
Veitingaþjónusta á Sauðárkróki keypti rafsendibíl fyrir tveimur árum án þess að prófa bílinn fyrst en hann hefur reynst vel
Þorsteinn Briem, 10.3.2017 kl. 02:22
Var virkilega enginn þarna með 16 ampera öryggi á þvottavélatenglinum?
ls (IP-tala skráð) 10.3.2017 kl. 07:53
Takk fyrir þessar upplýsingar, Steini. Þetta er allt að koma, við trúum báðir á það . En ég skrifaði þennan pistil til þess að segja frá raunverulegu verkefni, sem virtist von til að hægt væri að leysa í þessari viku á þann einfalda hátt að aka rafbíl milli Egilsstaða og Reykjavíkur, þótt stöðvarnar væru ekki komnar enn.
Verkefnið hefur nú frestast, enda urðu fleiri ljón í veginum. Það passaði vel við auglýsingarnar frá Peugeot um ljónin á veginum og minnir á það, að það mun hafa verið rafbíll af gerðinni 106 sem fyrst komst hringinn.
Ómar Ragnarsson, 10.3.2017 kl. 08:27
Ómar verum raunsæir. Setjum dæmið upp strax fyrir 50.000 bíla og að þú sért að skoða landið ekki keyra beint norður eða suður. Keyrum austur og sko'um Gullfoss og svo seljalands skógarfoss skreppum í fjörurnar viltu bæta einhverju við. Þú þarft kannski 10/20.000 hleðslustöðvar og pláss fyrir þá. Þetta fólk þarf að bíða í einn klukkutíma minnst.Hótel verða öll að skaffa hleðslu stöðvar. Ég hef reyndar ekkert spekúlerað hve lengi er verið að hlaða svona bíla en það fer eftir hver rafhlöður eru stórar og stærð á hleðslutækjum. Ég er með lausn. Nota rafmagnsbíla til daglegra nota frá heimili manna og kaupa sér 16 ampera dísil rafstöð á kerru og gera þetta almennilegt.
Valdimar Samúelsson, 10.3.2017 kl. 09:40
Það eru ekki nema 2 vikur síðan einn sem ég veit um fékk sér sunnudags bíltúr frá Reykjavík til Ísafjarðar á BMW i3 rafbíl.
Hann hlóð í Borgarnesi, Hólmavík og á Reykjanesi innst í Ísafjarðardjúpi.
Ferðin tók 12 tíma og þar af fóru ca 6 tímar í hleðslu. Hann notaði ekki hraðhleðsluna í Borgarnesi, skilst að stöðin hafi verið í ólagi.
Ef hraðhleðsla hefði verið í boði á þessum stöðum hefði ferðin einungis tekið 7,5 tíma.
Rétt að geta þess að þessi bíll er styður 3x16A hleðslu.
Sá hinn sami keyrði frá Seyðisfirði til Rvk í byrjun feb.
Þá fékk hann hleðslu í Jökuldal, Akureyri, Blönduósi og Borgarnesi.
Baldur Örn Óskarsson, 10.3.2017 kl. 11:34
Ómar, þig vantar eitt veigamikið atriði í klausuna en það snýst um 3ja fasa rafmagn. Það er ekkert mál að fá í hvaða húsi sem er 25 eða jafnvel 32 amper einfasa. Þriggja fasa rafmagn er aftur á móti ekki í boði hvar sem er.
Sindri Karl Sigurðsson, 10.3.2017 kl. 18:14
BMW i3 er ekki á færi hvers sem er að eignast. Þetta hefur sennilega verið sú gerð BMW i3, sem er með "framlengda drægni" ( "extended range") en þá er hægt nota um 600 cc bensínvél, sem er í bílnum, til að að lengja drægnina.
Því síður er Tesla á færi venjulegs fólks.
Renault Zoe er einmitt að koma núna með stóraukið drægi, en hann er með 41 kílóvattstund, sem er næstum tvisvar sinnum meira en Zoe var með áður og Nissan Leaf var með. (24 kílóvattsstundir).
En auglýsingarnar um hámarksdrægni rafbíla eru því miður byggðar á of mikilli bjartsýni, einkum við íslenskar aðstæður.
Ísland er kalt land, og það eru ekki aðeins rafhlöðurnar, sem það bitnar á, eins og ég hef sjálfur reynt á rafreiðhjóli mínu, heldur notum við Íslendingar miðstöðvarnar meira í bílum okkar en aðrar þjóðir og þær taka mikla orku.
Sem dæmi má nefna, að miðstöðin í Mitsubishi iMiev tekur 4 kílóvött af þeim rúmlega 20 kílóvöttum, sem þarf til að aka bílnum nálægt þjóðvegahraða.
Bíllinn er gefinn upp með 140-150 km drægni, en samkvæmt bandaríska staðlinum EPA, er drægnin aðeins um 100 km. Síðan fellur orkurýmd bílsins með aldrinum.
Á ráðstefnu Félags íslenskra rafverktaka í dag var einmitt fjallað um helstu viðfangsefnin við rafbílavæðinguna, sem tæpt hefur verið á hér á síðunni, heimtaugaumbætur, álagsstýringu, netlausnir og byggingarreglugerðir.
Ómar Ragnarsson, 10.3.2017 kl. 20:14
Það þarf ekki þriggja fasa rafmagn á Mitshubishi iMiev og ekki heldur á minni rafbílana. Hins vegar þurfti Gísli Gíslason þriggja fasa rafmagn til þess að komast á Tesla bíl sínum hringinn á 30 klukkustundum, því að hann hafði með sér hleðslustöð, sem þurfti 3ja fasa rafmagn og gat hlaðið bílinn nógu hratt til þess að hann kæmist hringinn þetta hratt.
Ómar Ragnarsson, 10.3.2017 kl. 20:40
Þú þarft 3ja fasa hleðslustöð til að hrað hlaða með einhverju viti, annars ertu að taka náttstaði á milli hleðslustöðva, eins og þú segir sjálfur.
Hefur ekki endilega neitt með amper að segja, bakarofninn hjá þér er trúlega með 20 ampera öryggi.
Sindri Karl Sigurðsson, 10.3.2017 kl. 22:48
Ég ætla ekki fullyrða eitt eða neitt og það má gjarnan leiðrétta mig en ég held að það sé ekki hægt að komast í 3ja fasa rafmagn frá Hrútafjarðarbotni í Hólmavík og frá Hólmavík til Súðavíkur (mögulega á Reykjanesi en ég er ekki viss). Styttra á milli þorpa fyrir Austan og Norðan en smá spotti frá Kirkjubæjarklaustri í Freysnes (ef það er 3ja fasa þar) annars er næsti staður trúlega við Smyrlabjörg.
Stærsta vandamálið tengt rafvæðingu er flutningskerfið og þar eru margir Þrándar í götu.
Sindri Karl Sigurðsson, 10.3.2017 kl. 23:02
Þessi i3 er ekki með range extender. Hann er með 33kWh rafhlöðu og getur hlaðið á 11kW komist hann í 3 fasa rafmagn.
Sé keyrt sparlega er hæglega hægt að komast upp í 200km á hleðslu í vetrarfæri.
Hann komst í 3 fasa rafmagn bæði á Hólmavík og hjá Saltverki á Reykjanesi.
Verðið er heldur ekki svo hátt sé hann verslaður hjá öðrum en B&L.
Sem dæmi kostar hann frá 3,4m í Noregi.
Það virðist bara of algengt að bílar hækki um milljón eingöngu við það að koma nálægt íslenskum bílaumboðum. Sérstaklega "dýrari" merki.
Baldur Örn Óskarsson, 11.3.2017 kl. 00:24
Varðandi ZOE þá er hann vissulega á ágætis verði hér og einungis hálfri milljón dýrari en í Noregi.
Gallinn er hinsvegar sá að hann virðist nota mjög mikla orku í kulda. Norðmenn eru að sjá 22kWh/100km og meira. Það er 30% meira en i3 og Ioniq.
Hann er ekki með rafhlöðuhitara sem gerir það að verkum að hleðsla getur verið mjög hæg sé hann settur í hleðslu stuttu eftir ræsingu í frosti og svo styður hann ekki DC hraðhleðslu. Aðeins 22 eða 43kW AC.
Þeir bílar sem eru að koma fljótlega og eru einna mest spennandi eru Hyundai Ioniq, sem er lang sparneytnasti rafbíll sem hefur verið framleiddur, og Opel Ampera-e sem er með 60kWh rafhlöðu og EPA dægni upp á tæpa 400km. (520km NEDC)
Ef allt væri eðlilegt ætti Ioniq að kosta inann við 3,5m og Amprea-e tæpar 4m.
Baldur Örn Óskarsson, 11.3.2017 kl. 00:39
Það þarf ekki merkilega græju til að redda sér 3ja fasa rafmagn.ég a svona græju sem virkar ágætlega
http://www.ebay.com.au/itm/Phase-Changer-Single-to-Three-Phase-Power-Converter-4kw-5-5hp-/271154593409?hash=item3f2212be81:g:JtUAAMXQdohREu3J
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 11.3.2017 kl. 11:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.