28.3.2017 | 16:16
Að hella eldi á olíu.
Alþjóðasamfélaginu er slétt sama um það sem er að gerast í löndum eins og Jemen á meðan engin hætta er á því að sams konar áhrif breiðist þaðan út eins og gerst hefur í Sýrlandi.
Jemen er afskekkt land og því áhyggjur litlar af stórfelldum flóttamannastraumi alla leið í áttina að Miðjarðarhafi.
Einu hagsmunirnir, sem truflað geta út á við geta falist í olíulindum, en í öllum ríkjum Arabaheimsins, þar sem olía er í jörð, má snúa máltækinu um að hella olíu á eldinn við og segja að allt fari í bál og brand þegar eldi hagsmuna og græðgi sé hellt á olíuna.
Svo er að sjá sem Túnis, upphafsland Arabíska vorsins, sé eina landið, þar sem Arabíska vorið barði að dyrum og hrærði upp í öllu og ástandið versnaði ekki.
Hvað gengur á í Jemen? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hver þjóð á bara að fá að heyja sína borgarastyrjöld í friði, án allra utanaðkomandi afskipta.
Þorsteinn Styrmir Jónsson (IP-tala skráð) 28.3.2017 kl. 19:58
Og frá hvaða ríkjum kaupa þeir vopnin? - Hverjir græða mest á þessum styrjöldum?
Þorsteinn Briem, 28.3.2017 kl. 20:53
16.9.2007:
Alan Greenspan fyrrum seðlabankastjóri Bandaríkjanna - Íraksstríðið snýst aðallega um olíu
Þorsteinn Briem, 28.3.2017 kl. 20:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.