23.5.2017 | 16:32
Hef ekki séð hliðstæðu áður.
Snjóalög á hálendinu hafa ekki verið svona lítil í svo að ég muni. Hins vegar geta "klakabönd" verið þar sem jörð er auð, ef frost hafa komið á auða jörð í vetur.
Klakinn er minnstur ef snjóað hefur snemma og snjó hefur ekki tekið upp eftir það, því að snjórinn felur í sér einangrun. En veturinn var alveg einstaklega snjóléttur alveg fram í febrúar.
Ef svellalög myndast í hlákum og frystir hressilega ofan í þau, getur orðið klakamyndun.
Alveg er hugsanlegt að hægt verði að opna Sauðárflugvöll í þessari viku því að nú hafa komið tæplega þrjár vikur með hlýju dögum þar eystra.
Helst er snjóalög að sjá á austanverðu hálendinu við Öskju, í kringum Snæfell og á Hraununum þar austur af.
Ef völlurinn opnast núna, verður það í fyrsta sinn sem slíkt gerist í maí, og hálfum mánuði fyrr en venjulega.
Að mestu laust úr klakaböndum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Á hálendinu valtar velli,
vorið heitt hjá ellismelli,
hlær að sínum hjartans vini,
honum Jóni Magnússyni.
Þorsteinn Briem, 23.5.2017 kl. 18:03
Góður! Steini! Grípur glatt
til góðrar tilvitnunar hratt, -
viðeigandi þarfaþings,
vísu þjóðþekkts Austfirðings.
Ómar Ragnarsson, 23.5.2017 kl. 23:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.