10.6.2017 | 15:45
Víða mesti hátíðisdagur ársins.
Sú var tíð að sjomannadagurinn í Vestmannaeyjum var jafnvel meiri hátíðisdagur en Þjóðhátíð Vestmannaeyja og víða um land var dagurinn mesti hátíðisdagurinn á þeim árum, sem vertíðinni lauk í maí og aflakóngar voru krýndir í framhaldinu á sjómannadaginn.
Þótt dagurinn sé á morgun, byrja hátíðahöldin víða á föstudag, eins og hér á Patreksfirði, þar sem við Helga erum stödd í dag og njótum góðs veðurs og hátíðarstemmingar.
Myndin er tekin nú rétt í þessu af hluta gesta á útskemmtun á íþróttavellinum, sem er rétt við höfnina og árnaðaróskir færðar þeim, sem geta glaðst yfir góðum skerf til þjóðarbúsins eitt árið enn.
Enginn Hafnarfjörður án hafnarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.