9.8.2017 | 17:16
Getur leigusali nokkuð skipt sér af gjaldtöku leigutaka?
Almenningur, sem kýs borgarfulltrúa, eru ekki allir kunnugir aðdragandann að því þegar Perlan var leigð einkafyrirtæki.
Ef nú er að spretta fram pólitískt álitaefni verða þeir sem veita stjórnmálamönnum vald að fá upplýsingar um gang mála frá upphafi fram á þennsn dag.
Ýmsu spurningum mætti svara:
Hverjir voru með leigusamningnum og voru einhverjir á móti?
Voru einhver ákvæði í leigusamningnum, sem takmörkuðu rétt leigutaka til gjaldtöku eða annarrar útfærslu á leigunni?
Fleiri spurningar mætti nefna, en að minnsta kosti þyrfti að svara þessum tveimur og síðar fleiri, ef fyrstu svörin gefa tilefni til.
Gjaldheimtan var kynnt í borgarráði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Verð upp í Hallgrímskirkjuturn:
Fullorðnir: 900 krónur.
Börn (7-14 ára): 100 krónur."
Þorsteinn Briem, 9.8.2017 kl. 18:28
"Perla norðursins mun hefja gjaldtöku út á útsýnispall Perlunnar 1. september.
Gjaldið verður 490 krónur fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir 15 ára og yngri, sem og gesti íshellis og jöklasýningar Perlunnar."
"Í skriflegu svari frá Degi [B. Eggertssyni borgarstjóra] segir að skýrt sé kveðið á um aðgengi almennings að veitingaaðstöðunni á fjórðu og fimmtu hæð.
"Þar sem útsýni er ekki síðra, eftir vel heppnaðar breytingar á veitingarýmunum.
Jafnframt er kveðið á um að öll skólabörn í Reykjavík fái endurgjaldslausan aðgang að náttúrusýningunni að minnsta kosti tvisvar á sínum skólaferli," segir í svarinu."
"Hvet ég reyndar alla til að heimsækja Perluna, skoða þessar breytingar og fara á þá frábæru sýningu um íshella og jökla sem þar hefur verið þróuð og sett upp.""
Þorsteinn Briem, 9.8.2017 kl. 18:37
3.3.2016:
"Reykjavíkurborg ætlar að semja við félagið Perlu norðursins ehf. um leigu á Perlunni í Öskjuhlíð en þar vill félagið setja upp veglega sýningu á náttúru Íslands, að því er fram kemur í tilkynningu frá borginni.
Perla norðursins sendi inn eina tilboðið þegar auglýst var eftir áhugasömum til að reka náttúrusýningu í Perlunni. Skilafrestur rann út 22. febrúar."
Þorsteinn Briem, 9.8.2017 kl. 18:48
22.10.2016:
"Við ætlum að umbylta Perlunni og reisa þar stærstu náttúrusýningu landsins," segir Agnes Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Perlu norðursins.
"Þetta verður sýning í heimsklassa á besta stað. Perlan á að verða eins konar einkennistákn Reykjavíkur - Eiffel-turn Íslands."
Perla norðursins er einkahlutafélag, sem stofnað var í kringum fyrirhugaða náttúrusýningu. Hluthafar í félaginu eru Icelandic Tourism Fund I (ITF1), sem er fagfjárfestasjóður Landsbréfa, Salta ehf., Lappland ehf. og Perluvinir ehf.
Síðasta vor samdi Perla norðursins við Reykjavíkurborg um leigu á Perlunni.
Samningurinn er til 25 ára og fær Perla norðursins húsið afhent 10. janúar næstkomandi.
Félagið greiðir borginni um 150 milljónir króna í leigu á mánuði eða 2.300 krónur á fermetra."
"Við gerum ráð fyrir að uppsetning sýningarinnar kosti um 1,5 milljarða króna og annað eins mun líklega fara í breytingar á húsinu.
Heildarkostnaðurinn verður því líklega á bilinu 2,8 til 3 milljarðar króna, sem gerir þetta líklega að stærstu fjárfestingu tengdri afþreyingu í ferðaþjónustu hérlendis.""
Á næsta ári verða byggð ísgöng í einum hitaveitutanki Perlunnar.
"Göngin verða um 70 metra löng og er hugsunin sú að þegar fólk gengur inn muni það upplifa hvernig það er í raun að ganga inn í íshelli.
Öll skilningarvitin verða virkjuð. Fólk mun finna fyrir kulda og vindi, geta komið við ísinn og heyrt hljóðin í honum.
Þegar gestirnir koma út úr göngunum koma þeir inn á sýningarsvæði sem helgað er jöklum landsins.
Í Perlunni verður einnig stjörnuver en þar verða þó ekki bara sýndar myndir af himinhvolfinu, heldur einnig helstu náttúruperlum Íslands.
Sumarið 2018 muni sýningin enn stækka þegar sýning tengd flóru landsins og frekari jarðfræði verði opnuð."
Perla norðursins setur þrjá milljarða króna í Perluna
Þorsteinn Briem, 9.8.2017 kl. 19:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.