7.9.2017 | 14:49
"Dreginn margur og ýtt frítt."
"Hvað er skemmtilegast í jöklaferðunum?" spurði ég eitt sinn tíu ára strák sem var í jeppaferð í Kverkfjöll.
"Festa sig, gera við, ýta, draga!" sagði hann og hefði sennilega sagt það líka, ef hann hefðir verið á ferð með stóra jöklatrukknum, sem birt er mynd af í festu á Langjökli í tengdri frétt á mbl.is. og ég læt fylgja með í tengingu hér yfir á blog.is
Aðrir viðmælaendur í Kverkfjallaferðinni töluðu um dýrðina og dásemdina á fjöllum.
Í árlegum rannsóknarleiðangri á Vatnajökul á vorin er glíman við krapasvæði viðfangsefni algengt viðfangsefni.
Í tveimur leiðöngrunum notaði ég minnsta jöklajeppa landsins til að fara og kvikmynda leiðangrana.
Í fyrri leiðangrinum þótti mönnum með ólíkindum hvað Foxinn flaut víðast ofan á snjónum þegar þrefalt þyngri jeppar sukku á sínum miklu stærri dekkjum.
En ég vísaði í flotformúlu, sem ég hafði gert því til sönnunar hve Súkkan flaut vel.
Þar að auki var snjórinn víðast þannig á hájöklinum, að efsta lag snævarins var nokkuð samanbarið af skafrenningi, en lausasnjór neðar.
Ef tvö misstór dekk flutu jafn vel, þurfti stóra dekkið að sökkva meira niður í snjóinn til að fá nægilegt flot, en lenti þá oft í því að gefnum efsta lagið niður í lausamjöllinni og spóla í henni.
Þá var efsta lagið til trafala þegar drifkúlurnar þurftu að ryðja því frá sér.
Efsta myndin er af Súkkunni í Kverkfjöllum með Herðubreið í baksýn, en næsta mynd fyrir neðan hana er tekin á Bárðarbungu, með Tungafellsjökul og Hofsjökul fjær.
Þar stendur Súkkan keik ofan á snjónum á meðan Landcruiserinn fyrir framan er sokkinn það djúpt hiður að hann þurfi mokstur og drátt.
Í seinna ferðalaginu á Súkkkunni var ákveðið að telja drættina á henni.
Mikið krap var á leiðinni uppeftir sem hentaði betur stóru jeppunum og á uppleiðinni þurfti að kippa þrisvar í Foxinn.
Þegar fara átti niðureftir höfðu ökumennirnir á stóru jeppunum hins vegar neyðst til að fá kipp frá Súkkunni með teygjutógi til þess að þeir losnuðu nægilega þegar þeir voru fastir.
3:2, en leiðin ofan af jöklinum var eftir. Hún var farin í fylgd með Landcruiser, sem festist í krapi svo að það þurfti að moka áður en Súkkan, sem hafði beðið á meðan, kom fram fyrir og kippti í Krúserinnn.
Niðurstaða: 3:3.
Í laginu "Glöð við förum á fjöll öll", sem eitt af 72 lögum á plötunni "Hjarta landsins, - náttúran og þjóðin", - eru festur og vandræði gegnumgangandi auk mikillar ferðanautnar vegna tignar og fegurðar íslenskrar náttúru.
Í viðlaginu er sungið: "Glöð við förum á fjöll öll. / Á fjöllum erum við snjöll öll..."
Þar er því lýst að "Súkkan klessir nefið í klett nett", - "Willysinn út í á, vaá! / og á bólakaf þá, vá!,"
"Bráðum líkist hér bát Skát / á bólakafi er Skát mát", - "Rembist fastur nú Range Sveins,"
- "Öxul Bronkóinn braut hlaut / og bera beinin í laut hlaut / með bæði drifin í graut", -
"Á Patrolnum er í rúst púst", - "Á svelli fer í skrens Benz Jens / oní krapa er lens Jens", -
en líka þetta:
"Dembum okkur í drátt brátt,
hafa ekki um það hátt mátt.
Krægtu tógi í krók, blók,
vertu´ekki´að fá þér smók, blók.
Dreginn margur og ýtt frítt.
Dráttaraflið vel nýtt frítt.
Þreytt í skálann fólk dró þó.
Hver sveinn um elskuna bjó þó.
Dreymir alla nú drátt brátt.
Í drætti nýja fá mátt brátt."
Átta hjóla trukkur sat fastur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.