29.9.2017 | 08:39
Fordæmalausir vatnavextir? Forsmekkur að meiru?
Síðan einangrun Öræfasveitar á landi var rofin að austanverðu á sjöunda áratug síðustu aldar með byggingu brúar yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi minnist ég þess ekki, að önnur eins flóð hafi orðið jafn víða á leiðinni um Suðausturland og nú hafa orðið.
Vestan við þetta flóðasvæði bíður brúin hjá Jökulsárlóni eftir óhjákvæmilegum örlögum sínum þegar sjórinn brýtur endanlega niður símjókkandi haftið, sem er á milli lónsins og sjávarins.
Þá mun lónið breytast í fjörð með fljótandi ísjökum og þjóðvegur eitt endanlega rofna nema farið verði áður í mótvægisaðgerðir.
Komið hafa fram hugmyndir um varnarmannvirki til að stöðva landbrotið, en þá gleyma menn því að þarna eru 200 metrrar niður á fast undir sandinum.
Til að minnka rofið og kraftana sem eru í gangi í straumunum í ósnum þyrfti að búa til nýtt afrennsli fyrir Jökulsá það fjarri núverandi ós, að hið eyðandi samspil verði afnumið.
Sumar bílaleigur rukka strandaglópa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.