21.12.2017 | 17:24
Óhjákvæmileg orkuskipti.
Eitt af því sem hinir steinrunnu talsmenn hinna voldugu hagsmunaafla, sem fastast halda í skammtímagræðgi núlifandi jarðarbúa, hafa upp úr því að hafa sem hæst um loftslagsmál, en að með því fellur umræða um óhjákvæmileg orkuskipti vegna komandi skorts á olíu í skuggann.
Ljóst er að það tiltæki BMW, sem er skammstöfun fyrir Bayerishe Motoren Werke, hreyflaframleiðendur Bæjaralands, að breyta byggingu sinni úr tákni fyrir strokkana fjóra í eldsneytishreyfli í tákn fyrir rafhlöðu, mun ekki kæta Bandaríkjaforseta, helsta óvildarmann þýskrar bílaframleiðslu.
Eitt helsta keppikeflið í komandi baráttu fyrir "yfirburðum" Bandaríkjanna með endurheimt fornrar frægðar og "mikilfengleika Ameríku" er að ganga á hólm við þau iðnríki á Vesturlöndum, sem ógna "forystu" Bandaríkjamanna í bílaframleiðslu.
Það á ekki aðeins við um Þýskaland, heldur ekki síður Kanada, samanber 219 prósenta tolla á kanadískar flugvélar sem ógna forystuyfirburðum Bandaríkjanna. Gildir einu þótt Kanada sé á landakortinu í Norður-Ameríku, - nei, þau ógna amerískum yfirburðum sem Bandaríkin hafa einkarétt á.
BMW i3 rafbíllinn er aðeins eitt af því sem sýnir hvert þær verksmiðjur vilja stefna á orkuskiptaöld. Bíllinn sýnir þær framfarir, sem ná má með notkun nýrra, léttra og endurnýjanlegra efna auk hámarksnýtingar á möguleikum rafhreyfla og rafhlaðna.
Fleiri bílar í svipuðum dúr munu fylgja á eftir sem verða eitur í beinum þeirra fulltrúa olíu- og kolaiðnaðarins sem Bandaríkjaforseti hefur raðað í hóp helstu ráðgjafa og samverkamanna sinna.
BMW-strokkarnir nú tákn um rafhlöður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ómar tregur missti trúna,
tæpast oftar fer á frúna,
það kostar sex
kúlur og pex,
og kallinn er farinn að fúna....
ttp://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/12/21/frunni_vart_flogid_meir/
Þjóðólfur í Frekjuskarði (IP-tala skráð) 21.12.2017 kl. 21:31
Kannski er sameiginlegt þvermóðsku og þrjóskugen í sumum Íslendingum og okkar "frægasta frænda", Donald MacLeod Trump, ættuðum frá Tungu í Ljóðhúsum, Suðureyjum, Skotlandi.
Hörður Þormar (IP-tala skráð) 22.12.2017 kl. 00:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.