24.12.2017 | 12:46
Rauđar jólakveđjur.
Ađfangadagur er hvađ helgi snertir lengri í ţetta sinn en venjulega, ţví ađ sunnudagur telst allur vera helgidagur, en helgi ađfangadags byrjar klukkan 18:00.
Ef svo fer ađ hvít jól verđi um allt land nema hér viđ sunnanverđan Faxaflóa er viđeigandi ađ senda öllum landsmönnum jólakveđjur í rauđum lit, nánar tiltekiđ međ mynd af tveimur rauđum ítölskum "jólabílum" sem ég tók mynd af fyrir framam upplýstan vegg í tilefni jólanna ađ ţessu sinni, og sendi međ ţessari mynd kćrar kveđjur međ óskum um friđsćl, falleg og gleđileg jól og ţökkum fyrir áriđ, sem er ađ líđa.
Svo einhver fróđleikur sé látinn fljóta međ um ţessa tvo litlu bíla, er sá til vinstri af gerđinni Fiat 600, en sú gerđ kom fram á sjónarsviđiđ 1955 og sló í gegn víđa, var seldur í milljón eintökum samtals fyrstu fimm árin og allt tćplega 4 milljónum á framleiđsluferlinum.
Hann var nćstum metra styttri og 14 sm mjórri en VW Bjallan, en jafn hrađskreiđur og tók fjóra, jafnvel fimm í sćti.
Hann var framleiddur nokkurn veginn nákvćmlega eins í mörgum öđrum löndum, SEAT á Spáni, NSU Neckar í Ţýskalandi, Fiat 600 í Argentínu og Zastava 750 í Júgóslavíu.
Ţetta rauđa eintak rann af fćribandi í Júgóslavíu 1975 og var hluti af jólaskreytingu Tekk-kompínísins í Kauptúni um ein jól og geymdur ţar bakatil árum saman.
Bíllinn til hćgri er líka ítalskur, Tazzari Zero rafbíll, og er minnsti og ódýrasti rafbíllinn í umferđ hér á landi.
Mig dreymdi 1955 um ađ eignast Fiat 600, sem var umhverfismildasti bíllinn ţá, en draumurinn rćttist fjórum árumm síđar í NSU Prinz 1959 sem var enn umhverfismildari en Fiat 600.
Tazzari Zero bíllinn er hins vegar jólabíllinn hjá mér ađ ţessu sinni og verđur í minni umsjá framvegis og telst líklegast vera umhverfismildasti bíll landsins.
Gleđileg hjólahjól og jólabílajól!
Hvít jól um allt land nema SV-horniđ | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Athugasemdir
Ómar minn. Takk sömuleiđis međ ósk um gleđileg friđarjól:)
Var ađ velta ţví fyrir mér í morgun hvers vegna snjólaus jól eru alltaf kölluđ "rauđ jól"? Ţegar mađur horfir yfir landslagiđ, ţá er ţađ alls ekki rautt í snjóleysinu?
Bara rauđir bílar og í einstaka tilfellum rauđ hús, sem blasa viđ manni í snjóleysinu?
Ţetta skiptir svosem engu máli, en af ţví ađ ég er frekar forvitin kerling ţá langar mig ađ vita, hvers vegna snjólaus jól eru kölluđ rauđ jól?
Kćr jóla-hjóla-ljósadagsnýrrar-birtu-friđar-kveđja, til ykkar allra ţarna úti :)
M.b.kv.
Anna Sigríđur Guđmundsdóttir (IP-tala skráđ) 24.12.2017 kl. 14:01
Íslenskan á til svo mörg sérkennileg tilbrigđi. Af hverju er svo oft talađ um ađ dansa fram á "rauđa nótt"?
Ómar Ragnarsson, 24.12.2017 kl. 22:06
Ţegar nóttin verđur rauđ er ţađ vegna morgunrođans, sbr. í rauđabítiđ í fyrramáliđ.
Ţorvaldur S (IP-tala skráđ) 25.12.2017 kl. 00:09
Ég berst á fáki fráum
fram um veg,
mót hrađabungum háum
hendist ég,
en enga kyssi kinn
á konu, vćni minn,
ţví ţađ er bannađ ţennan mánuđinn.
Og fljótt, í 5. gíri,
á fleygiferđ
ég stjórn ţó hef á stýri,
en stundum verđ
ađ hćgja á mér um sinn,
ţví sjálfur meistarinn
hann Hjálmar er hér ćđsti dómarinn.
Og mjög er ţá í klípu,
ţví karlinn sá
af dogmatískri týpu
til mín sá
í gćr, á götuhorni'
ađ geysast fram úr norn,
en standard hans er stífur, býsna forn:
"Á 20 og hálfum
ţú hjóla mátt,
já, öllum heims í álfum.
Viđ ćtlum brátt
ađ ganga af dauđum hér
ţeim dárans bílaher,
og dýrlingur ţá Dagur lýstur er!"
Jón Valur Jensson, 25.12.2017 kl. 08:26
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.