10.1.2018 | 20:45
Vestfirðir áratugum á eftir í samgöngum.
Meðal flugvalla úti á landi, þar sem er búnaður til að stunda áætlunarflug með blindaðflugi og nætursjónflugi allan sólarhringinn árið um kring, ef veður leyfir má nefna: Sauðárkrók, Akureyri, Húsavík, Egilsstaði, Hornafjörð og Vestmannaeyjar.
Þannig hefur það verið í áratugi, en á hinn bóginn er enginn slíkur flugvöllur á Vestfjörðum.
Eini flugvöllurinn, sem hefði verið hægt að bjóða upp á slíka aðstöðu á með því að veita til þess fé, var flugvöllurinn við Patreksfjörð sem var lagður niður fyrir áratug og meira að segja gert í því að stytta hugsanlega nothæfa flugbraut.
Vestfirðir skera sig alveg úr að þessu leyti. Aðal flugvöllur landsfjórðungsins á Ísafirði er lokaður vegna myrkurs meira en 20 klukkustundir á hverjum degi á þessum árstíma, sama hvað veðrið er gott.
Hingað til hefur leiðin Vestfjarðavegur nr. 60 verið lokuð vegna snjóa á Hrafnseyrarheiði yfir veturinn.
Ekkert svipað fornaldarfyrirbæri hefur verið að finna í öðrum landshlutum.
Í meginatriðum ríkir svipað ástand á landi og í lofti á Vestfjörðum og var fyrir hálfri öld.
Með gerð nætursjónflugsflugvallar á Barðaströnd eða með því að gera upp Patreksfjarðarflugvöll, væri hægt að opna fyrir flug allan sólarhringinn til Vestfjarða, sem gæti fengið landtengingu í gegnum komandi Dýrafjarðargöng allt árið.
Landleiðin milli Patreksfjarðar og Ísafjarðar verður um 160 kílómetrar með tilkomu Dýrafjarðarganga, og á milli flugbrautar við Haga eða Brjánslæk aðeins um 100 til 120 kílómetrar.
Vestfirðir áratugum á eftir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.