31.1.2018 | 23:23
Sagnaslóðin eða vindorkugarðurinn?
Húsfyllir var í Dalabúð í kvöld á opnum íbúafundi, þar sem rætt var um ýmis málefni sveitarfélagsins, þar á meðal samstarfsyfirlýsingu sveitastjórnar við Stormorku um fyrirhugaðan vindorkugarð skammt fyrir norðaustan Búðardal, rétt við túnfót æskuslóða þjóðskáldanna Jóhannesar úr Kötlum og Jóns frá Ljárskógum.
Vindorkugarðurinn á að verða sex ferkílómetrar með um 40 150 metra háum vindmyllum.
Snemma á fundinum kom fram hjá sveitarstjórn, að Dalabyggð væri ekki eina sveitarfélagið sem fjallaði um svona hugmyndir, Snæfellsbær væri á undan.
Var það notað sem ein af rökunum fyrir því að vinna ötullega að þessu máli í Dalabyggð.
En síðar á fundinum bárust þær fréttir, að Snæfellsbær hefði hafnað hugmyndum um vindorkugarð með tvöfalt minni vindmyllum með þeim rökum að vindorkugarðurinn ylli allt of mikilli sjónrænni og hljóðrænni truflun fyrir umhverfið!
![]() |
Vatnajökulsþjóðgarður verði á heimsminjaskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.