3.12.2018 | 17:21
40 þúsund og eitt fífl?
Þeir, sem sífellt afneita þörfinni á að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis, hafa stagast á því að á loftslagsráðstefnum Sameinuðu þjóðanna siti samansafn fífla.
"40 þúsund fífl í París" er vinsæl setning.
Ef marka má þetta bjargfasta mat olíu- og koladýrkendanna hefur nú bæst við eitt fífl, David Attenborough.
Sem sagt: 40001 fífl.
Afneitunin er alger og í meginatriðum í nokkrum liðum.
1. Það er engin hnattræn hlýnun. Jafnvel hröð kólnun.
2. Ef það er hnattræn hlýnun er hún að engu leyti af mannavöldum.
3. Í 600 milljón ár hefur koltvísýringur ekki verið minni en nú. Sem þýðir að milljarða tonna útblástur af mannavöldum ekki bara hverfur, heldur veldur því að magnið koltvísýrings minnkar í andrúmsloftinu.
4. Ef númer 3 er rétt, þá eykst ekki súrnun hafsins, heldur minnkar hún. Enda segir Trump að vísindamenn heimsins falsi tölurnar.
5. Það er til meira en nóg af olíu og söngur um að hún gangi til þurrðar því lygar og blekkingar.
Mesta ógn mannkyns í þúsundir ára | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvað ætli svona ráðstefna sé í kolefnissporum ?
Haukur Árnason. (IP-tala skráð) 3.12.2018 kl. 18:12
En snjódýptarmetið á Akureyri? Bendir það nokkuð til einhverrar sérstakrar hlýnunar? 53 ára snjódýptar met slegið eða mesta snjódýpt frá því að mælingar hófust hvorki meira né minna.
Þorsteinn Styrmir Jónsson (IP-tala skráð) 3.12.2018 kl. 18:39
Snjómagn er mælieining fyrir úrkomu, en ekki hita.
Fyrstu áhrif hlýnunarinnar hafa víða falist í því að þegar rakir og vaxandi hlýir loftmassar hafa lent á köldu heimskotalofti, hefur úrkoman orðið metúrkoma og þá oft að vetrarlagi, svo sem á hinu víðlenda hálendi Harðangursheiðar í Noregi þar sem féll metsnjór strax fyrstu ár hlýnunarinnar.
En vegna þess að það voraði fyrr, sumrin voru hlýrri og haustin komu seinna, varð heildarniðurstaðan fyrir árið sú, að jöklarnir minnkuðu.
Hvað kolefnisspor varðar vega þúsund milljónir bíla í heiminum þyngst í samgöngum.
Ómar Ragnarsson, 3.12.2018 kl. 19:16
Er ekki best að lofa þessum mönnum að hafa sína skoðun í friði?
Það þýðir víst ekkert að segja neitt við henni, enda skiptir hún engu máli.
Svo er þetta bara ósköp venjuleg þvermóðska.
Hörður Þormar, 3.12.2018 kl. 20:58
Á heimsvísu eru örugglega til miklu fleiri óráðsmenn. Yrði ekki að bæta t.d. þér við og Benedikt Erlingssyni?
Hvorki þú, Benedikt eða David Attenborough getið með vísindalegum aðferðum sýnt fram á að koltvísýringi hafi áhrif á hitastig jarðar, hvað þá til skaða. Þetta eru trúarbrögð hjá ykkur og svona alíka gáfuleg eins og draugatrú er nú almennt.
Hér eru nokkrir sem hafa meiri forsendur til þess að hafa vit á þessu en þið allir til samans ef þú hefur áhuga á því að kynna þér hvað alvöru vísindamenn hyggja í þessu máli. Einn þeirra segir m.a. að ekki sé minnsti vottur af sönnun um að koltvísýringur hafi áhrif á hitastig jarðar:
Confessions of a Greenpeace Dropout - Dr Patrick Moore
https://www.youtube.com/watch?v=dCrkqLaYjnc
Nobel Laureate in Physics; "Global Warming is Pseudoscience
https://www.youtube.com/watch?v=SXxHfb66ZgM
Nobel Laureate Smashes the Global Warming Hoax
https://www.youtube.com/watch?v=TCy_UOjEir0
Global Warming; 31,487 Scientists say NO to Alarm
https://www.youtube.com/watch?v=eiPIvH49X-E
Climatology is a "Joke" - Nobel Laureate Dr Kary Mullis
https://www.youtube.com/watch?v=Y1FnWFlDvxE
Professor Bob Carter - The Faux "97% Consensus" - 10th ICCC
https://www.youtube.com/watch?v=5NinRn5faU4
Richard Lindzen: How Real Of A Threat Is Global Warming?
https://www.youtube.com/watch?v=qWMG-8V28Ds
Hér er mjög vísindalegur fyrirlestur sama professors í veðurfræðum
https://www.youtube.com/watch?v=H2czGg3fUUA
Jay Lehr - the slide show I showed Trump
https://www.youtube.com/watch?v=9oNutgSa7U4
William Happer - Climate, an Extraordinary Popular Delusion
https://www.youtube.com/watch?v=YKBwoO8DOPw
The Great Global Warming Swindle - Full Documentary HD
https://www.youtube.com/watch?v=oYhCQv5tNsQ
How the Global Warming Scare Began
https://www.youtube.com/watch?v=SyUDGfCNC-k
Steve Milloy - Draining the Climate Swamp
https://www.youtube.com/watch?v=vXZ3c5UkkCA
25 NASA Scientists Question the Sanity of the Global Warmists
https://www.youtube.com/watch?v=EhW-B2udhQw
Valdimar H Jóhannesson, 3.12.2018 kl. 22:20
Nei sko ! - Er ekki nýr ritsóði kominn inná völlinn...og Stóný Breim nýlega horfinn, til allrar hamingju. Það er víst alltaf von á einum....
Már Elíson, 4.12.2018 kl. 23:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.