29.1.2019 | 00:50
Mjög óvenjulegt flugslys.
Milljón flugvélar eru í notkun í heiminum og því er margt sem getur gerst. En flugslysið í Nepal í fyrra var afar óvenjulegt.
Að visu er ákveðinn blær yfir flugvellinum í Katmandu vegna hrikalegs fjallalandslagsins og flugs að og frá honum, en þó er það ekkert óviðráðanlegt með nútíma flugtækni.
Þess vegna kom það síðuhafa í opna skjöldu á sínum tíma að lesa skýrslur um þetta flugslys og það, að það gæti tekið tíma að komast að niðurstöðu um orsök þess, sem virtist jafn mikið "úti á túni" og brotlendingin sjálf varð.
Kom alveg upp úr þurru.
Niðurstaðan er jafn óvenjuleg og flugslysið og aðdragandi þess: Taugaáfall flugstjórans.
En meðan flug er, þrátt fyrir alla sjálfvirknina, jafn háð beinni stjórn manna, gildir sennilega það sem faðir siðuhafa hafði stundum á orði: "Svo er margt sinnið sem skinnið."
"
Flugstjóri fékk taugaáfall | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.