25.4.2019 | 20:17
Með hlýjustu vetrarmánuðum að baki.
Gleðilegt sumar. "Vorið góða, grænt og hlýtt..." Já, hlýindin eru mörg á ferðinni á þessu vori, hlýjasti fyrsti sumardagur í Reýkjavík og allt að 20 stiga hiti fyrir norðan, hlýtt sandmistur frá Sahara kom til landsins í gærkvöldi og vetrarmánuðirnir eru með þeim hlýjustu í heild sem um getur, eins og hægt er að sjá á Hungurdiskum, bloggsíðu Trausta Jónssonar veðurfræðings.
Skógabrunar hefjast óvenju snemma í Svíþjóð og Noregi.
Svona leit "Saharamistrið" út um hádegisbilið, grillir varla í Akrafjallið.
Meðalhitinn í Reykjavík vetrarmánuðina, sem eru að baki, var aðeins 0,5 stigum frá því að vera jafn hár og var fyrir nokkrum áratugum í apríl.
Í dag komst hitinn í 12 stig inni undir Vatnajökli á norðausturhálendinu í næstum 700 metra hæð yfir sjó.
Þetta allt rímar illa við það, sem sést hefur haldið fram á einstaka bloggsíðum hér á blogginu, að á meginlandi Evrópu, einkum í Þýskalandi, hafi verið einstæðar vetrarhörkur, sem hafi valdið orkuskorti og stórhækkuðu orkuverði og verið dæmi um það að hlýnun loftslags sé tilbúningur einn frá "40 þúsund fíflunum á Sþ ráðstefnunni í París."
Sand- og hitamistur í vaxandi þurrum og heitum loftmössum frá Sahara í Afríku eru reyndar fyrirbrigði sem spár um loftslagsbreytingar hafa nefnt sem vaxandi áhyggjuefni fyrir löndin og þjóðirnar norðan Miðjarðarhafsins.
Hitamet í Reykjavík slegið í hádeginu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Og það snjóar í byggð á Spáni í lok apríl! Þessu hlýtur öllu að hafa verið spáð.
El Acróbata (IP-tala skráð) 25.4.2019 kl. 22:37
Verð raforku er mikið mál. Verð hjá þjóðverjum er býsna hátt:
https://www.statista.com/statistics/263492/electricity-prices-in-selected-countries/
Hriktir í stoðum í þýskalandi vegna raforkuverðs:
https://www.bloomberg.com/news/articles/2018-09-24/electricity-power-prices-surge-for-german-mittelstand-merkel
https://www.statista.com/statistics/263492/electricity-prices-in-selected-countries/
Hér er nýjasta opinbera raforkuskýrsla þýskalands, með sundurliðun á heimilisraforku og iðnaðar , framleiðslu/flutnings und alles zusammen:
https://www.bdew.de/media/documents/190115_BDEW-Strompreisanalyse_Januar-2019.pdf
Ello
Elló (IP-tala skráð) 26.4.2019 kl. 09:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.