25.5.2019 | 13:03
"Aldrei áður í sögu fullveldisins." Jæja, hvað um fyrri dóma ME?
Sigríður Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra segir að aldrei fyrr í sögu fullveldis landsins fallið á kné fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu.
Jæja, hvað um dóminn fyrir rúmum aldarfjórðungi í máli Jóns Eiríkssonar á Akureyri?
Þegar það var talið nauðsynlegt að breyta dómskerfinu eins og það var þá í dreifbýlinu á Íslandi?
Segir dóm MDE umboðslaust at | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég hvet alla til að lesa ágæta grein Gunnars Harðarsonar heimspekings í Skírni um þetta Landsdómsmál.
Þorsteinn Siglaugsson, 25.5.2019 kl. 13:50
Hver er hægt að nálgast þá grein?
Guðmundur Ásgeirsson, 25.5.2019 kl. 14:31
Ekki geta þau þrasað við ESB varðandi auðlinda hagsmuni Íslands, en þegar kemur að persónulegum hagsmunum varðandi ráðningar, þá geta þau þrasað við ME. Skondið er það.
Egill Vondi, 25.5.2019 kl. 15:24
Svo langt er gengið að halda því fram að MDE sé ekki dómstóll.
Með sömu rökum, var greinarhöfundur kannski aldrei dómsmálaráðherra?
Var Landsréttur kannski aldrei skipaður, bara allt í plati?
Eins og í Eurovision framlagi Íslands: "alhliða blekkingar"?
Guðmundur Ásgeirsson, 25.5.2019 kl. 15:31
Jón var Kristinsson.
SH (IP-tala skráð) 25.5.2019 kl. 16:13
Mér sást yfir þessa furðulegu villu og er búinnn að leiðrétta hana. Takk, SH.
Ómar Ragnarsson, 25.5.2019 kl. 18:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.