17.6.2019 | 13:03
Unga fólkið er skorinort. Frelsisvor.
Það er vel til fundið að opna stofnanir lý8veldisins og gefa fólki færi á að veita hressandi andblæ þar inn.
Gaman er að hlusta á unga fólkið sem ræður ríkjum um stund á sérstökum fundi Alþingis þegar þessi pistill er skrifaður.
Athygli vekur skýr og skorinorður málflutningur hjá ungmennunum um fjölbreyttari málefi en ætla mætti þótt auðvitað séu þeim hugleikin mál, sem snerta sérstaklega ungt fólk.
"Undir fánanum bjarta nú brunar vort fley
inn í brim nýrrar aldar við vonanna þey..."
Með nýrri öld koma nýjar kynslóðir sem búa yfir miklum mannauði og menntun og eiga kröfu á því að núlifandi kynslóðir á jörðinni hætti þeirri rányrkju á auðlindum jarðar, sem bitnar mun á þeim sem á eftir koma.
Á facebook síðu minni er að finna tónlistarmyndbandið "Frelsisvor" og línurnar hér að ofan eru úr því.
En hér er ljóðið sjálft.
Frelsisvor! Framtíðarspor!
Frelsisvor! Áræði´og þor!
Það var árið með drepsótt og eldgos og ís,
en samt árið, sem birtist oss frelsisins dís.
Líkt og morgunsól albjört í austrinu rís
hófst nú öld þar sem lausnin var vís.
Heitur vorblær nú flutti hið ljúfasta ljóð
eftir lamandi vetur með svita og blóð.
Það var draumur um frjálsa og fullvalda þjóð
og hinn fegursta hugsjónaóð.
Eftir aldanna böl var loks birtu að sjá
þegar brustu hér hlekkirnir þjóðinni á.
Máttur fjöldans úr læðingi læstur var þá
svo að ljómaði gleði á brá.
Frelsisvor! Framtíðarspor!
Frelsisvor! Áræði´og þor!
Síðan flogin er glæsileg framfaraöld
þegar færð voru í landið hin ítrustu völd.
Þegar lýðveldi stofnaði fagnandi fjöld
svo að fært var á sögunnar spjöld.
Landið og fólkið, lifandi mál,
ljóðin og sögurnar þjóðlífsins sál.
Tónar og myndir,formæðra fold,
fósturjörð hjartkær, andi og hold.
Undir fánanum bjarta nú brunar vort fley
inn í brim nýrrar aldar í vonanna þey.
Þó að gefi á bátinn þá æðrumst við ei,
heldur eflist hver sveinn og hver mey.
Enn er sungið um vorið hið ljúfasta ljóð
þegar logar á tindunum jöklanna glóð.
Það er söngur um frjálsa og fullvalda þjóð
og hinn fegursta hugsjónaóð:
Frelsisvor! Framtíðarspor!
Frelsisvor! Áræði´og þor!
![]() |
Hátíðardagskrá 17. júní um landið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.