30.9.2019 | 11:04
Dýrlegur sumardagur í gær. Skaflinn merki um kalt sumar?
Dýrlegt sumarveður var á stórum hluta landsins í gær og sem dæmi um blíðuna eru myndir, sem teknar voru í Hvalfirði og verða settar á síðuna, en Hvalfjörður er ekkert sérstaklega þekktur fyrir að vera spegilsléttur í norðaustanátt.
Öll hæstu fjöllin á suðvesturhorninu voru snjólaus á þeim hliðum, sem sneru að sól, og sum raunar snjólaus með öllu eins og Skjaldbreiður, sem er 1060 metra hár.
Það er óhætt að segja að sínum augum líti hver á silfrið hvað snertir þræturnar um hlýnandi loftslag.
Nýjasta innleggið hjá einum af þeim, sem síðuhafi rakst á í fyrradag, var athyglisvert.
Hann sagði það væri augljóst merki um það að sumarið hefði verið kalt, hvað það tók skaflinn í Gunnlaugsskarði í Esjunni langan tíma að hverfa með öll.
Ef sumarið hefði verið hlýtt hefði hann horfið mun fyrr í stað þess að hverfa ekki alveg fyrr en í blálokin á september!
Skaflinn í Gunnlaugsskarði aftur horfinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.