14.2.2020 | 11:02
Athyglisverður munur á veðrinu í Reykjavík og Keflavík í nótt.
Athyglisvert er að sjá tölurnar um veðrið á tveimur flugvöllum í nótt.
Þetta voru Keflavíkurflugvöllur og einn af varaflugvöllum hans, Reykjavíkurflugvöllur.
Á Keflavíkurflugvellli var loft alveg rakamettað, eða 100 prósent og uppgefið skyggni 0,8 km og vindur allt að 36 m/sek í hviðum, og 30 m/sek á meðan 100 prósent rakinn var, sem þýðir fárviðri og hámarks raki.
Þetta ástand varaði í meginatriðum frá miðnætti fram á sjötta tímann.
Á Reykjavíkurflugvelli var raki í lofti á sama tíma milli 80 og 90 prósent og í einni af athugununum fór skyggni niður í þrjá kílómetra.
Í flugveðurspá klukkan sjö í morgun var spáð allt að 100 hnútum eða um 50 m/sek í 5000 feta hæð.
Í fluginu er gefið út svonefnt sigmet ef vindurinn fer í 25 hnúta eða meira (meira en 50 hnúta).
Ástæðan fyrir þessu er einföld: Reykjanesfjallgarðurinn, allt að 700 metra hár, sem austanvindurinn fer yfir á leið sinni til Reykjavíkur, en fer framhjá á leið sinni til Keflavíkur.
Rakamassinn skellur af fullum þunga á Suðurnesjum, en Hengill, Vífilsfell, Bláfjöll og Langahlíð rífa rakann úr massanum, í svo að mestur hluti hans fellur þar upp frá sem úrkoma.
Öll nýjustu tíðindi af ofsaveðrinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.