27.2.2020 | 18:08
Danirnir að bjóða "vitlausan" XC40 tengiltvinnbíl?
"Ljóminn á skilið það lof, sem hann fær" var sungið í þekktri auglýsingu, og víst er Volvo XC40 í ýmsum útfærslum er vel heppnaður bíll.
Síðuhafi var einn af þeim, sem eftir að hafa fengið í hendur árlegan bækling helsta danska bílablaðsins í hendur, hlakkaði til að sjá tvær útgáfur XC hér á landi, tengiltvinnbílinn XC Twin Engine og hreina rafbílinn XC Recharge.
Á meðfylgjandi myndum af viðkomandi blaðsíðu í Bilrevyen er tengiltvinnbíllinn blár, en rafbíllinn hvítur.
Síðan kom auglýsingin frá Brimborg um kynningu og sýningu á Volvo XC Recharge, sem væri tengiltvinnbíll.
En þá vandaðist málið, því að í Bilrevy bæklingnum, heitir tengiltvinnbíllinn skýrt og skorinort Volvo XC40 Twin engine, en hins vegar hreini XC40 rafbíllinn Volvo XC40 Recharge.
Og í blaðinu sést skýrum stöfum að bensínvélin í tengiltvinnbílnum sé aðalhreyfillinn, en í að í Recharge væru tveir rafhreyflar eingöngu.
Óg í mun ítarlegra yfirliti um helstu tölur er munurinn enn skýrari.
Í símtali við sölumann Brimborgar eftir sýninguna fengust þau svör að hreini rafbíllinn kæmi ekki á markað fyrr en eftir næstu áramót.
Sé það rétt hefur hið gamalgróna danska bílablað gert einhver verstu mistök í ársútgáfu sinni í marga áratugi.
Eru Danirnir að bjóða "vitlausan" XC tengiltvinnbíl?
Í dag er ástandið óbreytt, fimm dögum eftir sýninguna, og í frétt sagt frá "frumsýningu Volvo XC40 Recharge tengiltvinnbílsins."
Svo virðist ekki vera þegar farið er inn á netið til skoðunar. Þar er það bara hreini rafbíllinn, sem er aðeins með rafhreyfil, sem heitir skýrum stöfum "Volvo XC40 Recharge."
Sýndu Volvo XC40 mikinn áhuga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.