Íslenska glíman veik fyrir veirunni.

Íslenska glíman er greinilega berskjölduð fyrir COVED-19 veirunni. Hver glíma byrjar afleitlega á eftirfarandi skylduatriði: 

Keppendurnir tveir ganga í átt að hvor öðrum og heilsast með handabandi. Verra getur það ekki verið. 

Síðan byrjar það návígi, sem glíman er með tilheyrandi mæði og blæstri hvor framan í annan. 

En samt er þetta ekki búið. 

Nei, það versnar. 

Ef svo skyldi hafa hist á að handabandið í upphafi hafi ekki reynst nóg til að bera veiruna á milli keppenda, endar hver glíma á því skylduatriði að keppendur ganga hvor að öðrum og takast aftur í hendur og heilsast tryggilega með handabandi. 


mbl.is Neitaði að taka í höndina á Merkel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Ómar.

Íslenska glíman, er hún ekki á leiðinni
á öskuhauga sögunnar eins og rímnaspangólið
þótti hallærislegt og fékk svo eftirminnilegt
náðarhöggið?

Húsari. (IP-tala skráð) 2.3.2020 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband