Við að "gúggla" nokkur aðalatriði vélhjólaaksturs á netinu í því skyni að finna einhverjar tölulegar staðreyndir um þá áhættu, sem tekin er við slíkan akstur umfram þá áhættu, sem tekin er við aksturs bíls, koma nokkur óvænt atriði í ljós.
1. Fyrirsögn fréttarinnar: "Þú þarft að hugsa fyrir tvo", sem líka má orða þannig, að þú þarft að gera ráð fyrir því að enginn annar í umferðinni í kringum þig sjái þig. Vera viðbúinn því að hver, sem er, geti gert þau mistök að sjá þig ekki. Vera í gulu vesti.
2. Vera "ekdrú." Banaslys og alvarleg slys eru tvöfalt algengari á vélhjólum en bílum - en - helmingur banaslysa og alvarlegustu slysa á vélhjólum verður vegna þess að ökumaðurinn er ekki allsgáðður - er ekki edrú. Þetta er þrefalt hærra hlutfall en hjá ökumönnum bíla, þannig að mismunurinn hvað ökutækin varðar er að mestu fólginn í þessu eina atriði. Dæmi: Maður undir áhrifum vímugjafa, sem sest undir stýri á bíl og ekur á staur eða vegg meiðist að öðru jöfnu minna en ef hann gerir þetta sama á vélhjóli.
3. Vera með lokaðan hlífðarhjálm á höfði. Alltaf lokaðan, helst líka á reiðhjóli, því að ef lent er í árekstri við bíl, ræður enginn því fyrirfram hvort sá bíll er smábíll eða stór flutningatrukkur.
4. Vera í vélhjólaklossum eða stígvélum með ökklavörn. Ökklabrot eru algengasta beinbrotin í vélhjólaakstri. Vera með góða hanska með höggvörn fyrir hendur og hnéhlífum og sérstakri vörn fyrir olnboga má bæta við. Bakvörn og heilum vélhjólagalla má bæta í drauma sína. Góð stígvél og hanskar eru líka nauðsynleg til að gefa gott skjól fyrir regni og kulda.
5. Hafa öll réttindi í lagi, bæði á manni og bíl, og halda sér í formi.
Ef sérstök rækt er lögð við ofangreind atriði við vélhjólaakstur er búið að jafna áhættuna miðað við það að nota frekar bíl.
Bifhjólafólk þarf að hugsa fyrir tvo | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Af hverju ekki að gera sér ljóst að akstur á vélhjóli er hættuspil.Maðurinn er óverinn og hjólið er miklu valtara en bíll.
Þú tekur áhættu í skiptum fyrir ánægjuna. Ef þú vilt ekki skemma skrokkinn þinn þá ferðu akki á vélhjól.Punktur. Það er bara ónauðsynlegt fíflarí.
Það er nefnilega ekki spurning um hvort heldur bara hvenær eitthvað skeður sem þú sérð eftir.
Auðvitað er æðislegt að þeysa í 150 km. hráða á mórhjóli. En það er miklu hættulegra en að fljúga lágflug á 300 km. hraða.
Halldór Jónsson, 1.7.2020 kl. 10:57
Hver er að tala um að "þeysa í 150 km hraða á mótorhjóli"? Í 8 þúsund kílómetra akstri mínum úti um allt land hef ég að sjálfsögðu verið innan við lögleg hámarkshraðamörk.
Í fyrra óhappi mínu á rafreiðhjóli 14. apríl 2015 var ég á fimm kílómetra hraða á gangbraut og í síðara skiptið, 2. janúar 2019, á 20 km hraða á hjólastíg.
Fyrra skiptið hélt ökumaður bílsins að ég væri kominn yfir akbrautina og gaf í, þótt hann sæi ekki fram fyrir sig vegna lágrar kvöldsólar.
Í síðara skiptið var hjólreiðarmaðurinn, sem kom á móti mér, að reyna að lesa af rafhlöðumæli hjólsins, horfði ekki fram fyrir sig og sveigði yfir á öfugan vegarhelming.
Bæði skiptin, að ökumaðurinn sæi ekki það sem var framundan, hefðu alveg eins getað gerst hjá þeim undir stýri á bíl á 90 km hraða.
Ómar Ragnarsson, 1.7.2020 kl. 13:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.