27.8.2020 | 19:06
Þrjátíu ára harmkvælasaga.
Það eru komnir um þrir áratugir síðan farið var að ræða um Sundabraut sem stórkostlega samgöngubót á ótal vegu, sjö kílómetra styttingu þjóðleiðarinnar frá Kjalarnesi til syðri hluta höfuðborgarsvæðisins og þar með í raun styttingu leiðarinnar frá Vesturlandi og Norðurlandi til Suðurnesja.
Og þar að auki mikil samgöngubót á milli hverfa í Reykjavík og einnig milli einstakra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu þegar grannt það er grannt skoðað, hvernig brautin virkar í því heildarkerfi, sem flest í veganetinu á þessu svæði.
Í 30 ár hefur í raun ekki nokkur skapaður hlutur gerst, hefur hefur þvert á móti verið þrengt að þeim möguleikum, sem gefst við að útfæra þessa góðu hugmynd.
Ámælisvert að Sundabraut skuli ekki hafa verið byggð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Vitið væri meira að fresta þessu áfram í 30 til 50 ár og grafa þá jarðgöng. Það er engin þörf á þessu fyrr þar sem búið verður að bæta samgöngur um Kjalarnesið.
El lado positivo (IP-tala skráð) 27.8.2020 kl. 20:36
Hún móðir mín sem er nú orðin 91 ára hefur oft minnst á þessa brú og fundist ótrúlegt að hún hafi ekki verið byggð
Mér virðist Sundabrú ekki einu sinni vera neins staðar á áætlun
Grímur Kjartansson, 27.8.2020 kl. 21:20
Það væri nær að byggja glæsilega Sundabraut,
með enn glæsilegri hábrú
í stað hinnar vitlausu "Borgarlínu"
sem enginn botnar í hvað er, né hvað eigi að verða
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.8.2020 kl. 22:21
Símon Pétur kl. 22:21. Borgarlínan verður nýtt og afkastamikið kerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Hefur þú aldrei notað almenningssamgöngur á Íslandi eða erlendis? Hefur þú aldrei heyrt minnst á Strætó eða séð. Ertu kannski alinn upp í sveit og hefur aldrei farið í kaupstaðarferð?
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 27.8.2020 kl. 22:38
Haukur Kristinsson kl. 22:38
Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík.
Fer minna ferða gangandi, hjólandi,
eða á neyslugrönnum smábíl.
Við, sem búum í þessu Faxaflóaþorpi
þurfum alls enga, afar kostnaðarsama "Borgarlínu"
Býrð þú erlendis, í alvöru stórborg?
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.8.2020 kl. 22:54
Slóð
Nýr Axar vegur mun spara 733 miljónir á ári, og borga sig upp á þremur til fjórum árum. Vegagerðin, fólkið, heldur áfram að spara sömu upphæð um ókomin ár. Veg yfir sprengisand norður, og austur í Kárahnjúka, strax.
Jónas Gunnlaugsson | 2. október 2017
Hér er Guðni Nikulásson, með grein um sparnaðinn fyrir Vegagerðina, ef góður vegur yrði lagður yfif Öxi.
Þarna er Guðni að segja okkur að ef 200 bílar á dag, fara um Axar veg, frekar en að aka fjarðarleiðina,
þá sparar vegagerðin slit á vegum vegna 200 bíla x 71 kílómetrar x 365 dagar, verður 200*71*365 = 5.183.000 kílómetrar,
Slit á vegum vegna 5.183.000 eða 5,183 miljón kílómetra aksturs á einu ári, er í krónum, 733 miljónir, sem er sparnaðurinn, við að fara Axarveg í staðin fyrir að fara fjarðaleiðina.
Nýr Axar vegur mun spara 733 miljónir á ári, og borga sig upp á þremur til fjórum árum, og heldur áfram að spara sömu upphæð um ókomin ár.
000
Mér sýnist kostnaður á kílómetra sé 141,42 kr
Þú talar um 7 kílómetra styttingu X? bílafjöldinn x slit 141,42 krónur á kílómetra.
Hvað gerir það á ári?
Skoða hvort rétt er reiknað.
Egilsstaðir, 30.08.2020 Jónas Gunnlaugsson
Egilsstaðir, 30.08.2020 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 30.8.2020 kl. 01:24
Þú talar um 7 kílómetra styttingu X? bílafjöldinn x slit 141,42 krónur á kílómetra, á dag x 365 dagar
Það væri gott að geta minnkað stafina inni í ritlinum.
Egilsstaðir, 30.08.2020 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 30.8.2020 kl. 01:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.