Nú virðist það færast í aukana hjá veðurfræðingunum í Sjónvarpinu að nefna helst aldrei Vestfirði nema með greini. Og jafnvel líka Austfirði.
Hámarki náði þetta í gærkvöldi þegar heitið Vestfirðir var nefnt með greini alls sex sinnum, og heitið beygt svona: Vestfirðirnir - um Vestfirðina - Frá Vestfjörðunum - til Vestfjarðanna.
Til þess að átta sig á eðli málsins, skulum við segja sem svo, að þrumur og eldingar hefðu heyrst og sést í Reykjavík og á Selfossi.
Þá myndi mörgum bregða í brún, ef fréttamaður segði að það hefði orðið vart við þrumur og eldingar í Reykjavíkinni og á Selfossinum.
Athugasemdir
Ég geng á Esjuna en alls ekki Hekluna!
SH (IP-tala skráð) 23.9.2020 kl. 18:36
Já, já, enda er um að ræða málvenju á hverjum stað eða svæði fyrir sig.
Þess vegna sýnir það vanvirðingu og mismunun í garð heimafólks, þegar það er talið allt í lagi að segja "á Bolungarvík" en alveg fráleitt að segja "á Reykjavík."
Ómar Ragnarsson, 23.9.2020 kl. 20:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.