21.11.2020 | 20:10
Hamagangur með endemum.
Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins skrifar góðan bloggpistil um óhemjuganginn í Bandaríkjaforseta varðandi aðför hans að lýðræðinu í Bandaríkjunum.
Að sjálfsögðu hefur það alltaf verið heimilt að koma með ábendingar og kærur varðandi framkvæmd kosninga hafi menn gögn í höndum til slíks málatilbúnaðar.
En óheyrilega hrikalegar ásakanir Trumps langt fram yfir allt sem dæmi eru um í þau 160 ár sem heimilt hefur verið að kjósa utan kjörstaðar eru svo svakalegar, að engu tali tekur, einkum þegar farið er að líta á málsefnin sem hljóða upp á "milljónir og aftur milljónir" falsaðra atkvæðaseðla og meira að segja látið að því liggja að látinn forseti Venusavuela standi á bak við heilt samsæri um það!
Styrmir og Matthías Jóhannessen voru einstakt tvíeyki í ritstjórastólum á sinni tíð og það er dapurlegt að sjá sumt í leiðara blaðsins þar sem tekið er undir með Trump og meira að segja seilst svo langt að bera saman langvinna endurtalningu í Flórída árið 2000 dæmi sem hliðstæðu við endemin nú.
Í Flórída stóð svo tæpt um úrslit, sem réðu því hvort Gore eða Bush yrði forseti, að þar var aðeins um 500 atkvæði að ræða, sem gátu talist vafaatkvæði, eins og gengur.
Miðað við fólksfjölda samsvaraði það innan við einu atkvæði hér á landi og er augljóst að þegar svona tæpt er, getur verið vandasamt að komast að réttri niðurstöðu.
Þegar þetta er borið saman við "milljónir og aftur milljónir" sem Trump hrópar nú og hefur enn engin frambærileg gögn að bera fram, sést vel hve mjög er hér farið offari.
Í kosningunum 1960 var Daley borgarstjóri í Chicago grunaður um græsku í afar tvísýnum forsetakosningum en engin eftirmál urðu.
Möguleikum Trumps fækkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ertu Ómar að segja að sá forseti sem flestum blaðamönnum hefur svarað í heiminum frá upphafi og sem mest hefur þurft að þola frá þeirra hendi, sé hættulegur lýðræði?
Ég tel reyndar að þeir sem þannig tala séu frekar þeir sem hættulegir eru lýðræði og óski sér fjölmiðlaræðis í stað lýðræðis. Þetta fólk er búið að eyða fjórum árum í að bola réttkjörnum forseta bandarísku þjóðarinnar frá völdum með aðdróttunum, lygum, ofsóknum og valdníðslu með aðstoð og fyrir tilstilli Demókrataflokksins.
Þess utan sagði Joe Biden fyrir kosningar að hann hefði sett á laggirnar mestu kosningasvindlvél nokkru sinni. Af hverju einbeita fjölmiðlar sér ekki að henni?
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 22.11.2020 kl. 00:04
Ég vissi nú reyndar að Trump hafði ítrekað hvatt sína stuðningsmenn opinberlega í sjónvarpi til þess að greiða atkvæði eins og oft og þeir gæti.
En þessi ummæli Bidens fóru alveg fram hjá mér.
Ómar Ragnarsson, 22.11.2020 kl. 01:24
https://www.youtube.com/watch?v=MA8a2g6tTp0
Ello (IP-tala skráð) 22.11.2020 kl. 10:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.