25.12.2020 | 19:58
Víst verður bókvitið í askana látið.
"Bókvitið verður ekki í askana látið." Þetta íslenska spakmæli, sem felur það í sér, að fánýtt sé flest nema afrakstur þess sé mældur í næringu eða efnislegum mælieiningum, hefur orðið furðu lífseigt hér á landi.
Lítið hefur verið gert úr þeirri starfsemi sem felst í sköpun andlegra verðmæta á sviði lista, hugvits og fruamkvöðlastarfsemi.
Hafa orð eins og "afætur", "ónytjungar" og "baggi á þjóðinni" jafnvel verið notuð.
Velgegni íslenskra rithöfunda á mörkuðum erlendis er hins vegar aðeins hluti af miklum tekjum, jafnvel töldum í mörgum tugum milljarða króna á venjulegum árum, sem annað en stóriðja gefa þjóðinni, jafnvel á verstu COVID-19 tímum.
Hefur selt milljón bækur í ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.