30.1.2021 | 20:34
Er árið 1990 komið aftur á Stöð tvö?
Eftir nokkur ár í miklum darraðardansi í rekstri var prófað einhvern tíma í kringum 1990 að læsa áhorfi á þá þætti, sem höfðu fram að því verið með opna dagskrá og bar þar hæst flaggskipt stöðvarinnar, fréttirnar, sem á einum tímapunkti höfðu komust í jafnmikið áhorf og fréttir Sjónvarpsins.
Niðurstaðan varð svipuð og í álíka tilraun nú; mikið hrap á áhorfi.
Á þessari bloggsíðu var þetta rifjað upp þegar dagskránni var allri læst á Stöðinni nú á dögunum og varað við þeirri áhættu, sem tekin væri.
Samt var sú von látin í ljós að vegna breyttra aðstæðna á fjölmiðla- og samskiptamarkaðnum að þetta færi ekki á sama veg og fyrir 30 árum og hefði í för með sér bagalega minnkun á áhorfi.
Nú virðist ekki að sjá, að það stefni í neitt skárri átt en 1990. Þá var brugðist skjót við og vonandi verður fundin leið út úr þessu núna.
Dregur úr áhorfi á Stöð 2 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er eðlilegt, fækkun a áhorfendaminutum er frettatiminn, sami fjölda áskrifta, Ég held ekki að þeir komi til með að fá fleiri áskrifendur vegna lokun a frettatimanum
Hallgrímur Hrafn Gíslason, 30.1.2021 kl. 21:05
Ef þeir fá ekki fleiri áskrifendur, munu auglýsingatekjurnar þá ekki minnka vegna minna áhorfs?
Ómar Ragnarsson, 31.1.2021 kl. 01:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.