11.2.2021 | 20:29
Vinda- og sólfar virðist oft fjarri ákvörðunum í samgöngum og byggingum.
Reykjavík er nyrsta höfuðborg í heimi og ætla mætti að þar með væri það vitað, að sól er hér lægri á lofti en í nokkurri annarri höfuðborg.
Engu að síður virðist aldrei verið reiknað með þessu mjög svo mikilvæga atriði, heldur er háum húsum plantað niður eins víða og hægt er.
Ótal dæmi eru um gildi þess að það sjáist til sólar, svo sem ef horft er á það, hvar fólk getur sest út í björtu veðri við borð á gangstétt og notið sólar, ekki bara sólarljóssins, heldur líka þess hita sem sólin ber í þeirri höfuðborg heims, sem er ekki bara með lægsta sólarganginn, heldur líka kaldasta júlímánuðinn.
Eitt af ótal dæmum eru fyrirætlanir um flugvöll við Hvassahraun, þar sem algengasta rokáttin á suðvesturhorninu veldur miklu meiri sviptingum í aðflugi og fráflugi en á Reykjavíkurflugvelli.
Nú virðist ekki nóg að gert, heldur líka að búa til eftir föngum nýja vindhvirfla á núverandi flugvelli.
Ný hverfi valda ókyrrð á flugbrautum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Í minum huga eru flugvallarhugmyndir í Hvassahrauni ofan í gígaröðinni sem liggur eftir Reykjanesskaganum meira í ætt við geðveiki en alvöru. Þær verða ekki stöðvaðar nema í kosningum þar sem fólkið verður að láta skoðanir sínar í ljós.
Ef það er svo gersamlega skyni skroppið að kjósa Dag, Sigurborgu Ósk, Hjálmar Sveins og Þórdísi Lóu aftur þá er spilið bara endanlega tapað og skynsemin kvödd.
Það er bara spurningin um það hver hefur næga hæfileika og dug til að fara í orrustuna við Daginn og berjast við þetta lið með orðsins brandi.
Davið kemur víst ekki aftur eða hans jafningi.
En hver verður sá næstbesti?
Halldór Jónsson, 11.2.2021 kl. 22:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.