Mannfall Tékka samsvarar 600 látnum hér. Kerfið að örmagnast.

Í Tekklandi búa um 20 sinnum fleiri íbúar en hér á landi. Þar hafa nú 20 þúsund látist í farsóttinni og miðað við fólksfjölda samsvar það um 600 manns hér. Hér hafa hins vegar aðeins 30 látist. 

Í umræðunni um þessi mál hefur það loðað við hana hjá mörgum, að skárra sé að lofa sóttinni að fara sínu fram að mestu, því að hvort eð er séu flestir hinna látnu með svonefnda undirliggjandi sjúkdóma, ellihrumleika eða aðra veikleika og að þegar á allt sé litið sé það ekkert svo ýkja slæmt að þessu fólki fækki. 

En reynslan hefur sýnt það margsinnis allt frá upphafi faraldursins og nú síðast hjá Tékkum, að hjá þeim sem nota orðalagið "þegar á allt er litið" virðist oft gleymast, að það er engin endanleg lausn og auðveld að "losna við" sjúklingana. 

Í fyrsta lagið kostar sjúkdómslega mikils fjölda fólksgríða rlegt rými, mannskap og tæki, og með því að legunni lýkur taka líkgeymslur, útfararþjónusta og legstaðir við áður en öll kurl koma til grafar í bókstaflegri merkingu. 

Sá hluti heilbrigiskerfisins sem þetta þarf að annast er nú á barmi þess að örmagnast í Tékklandi eins og víðar, en ef slíkt gerist bitnar það í raun enn neira á öðrum sjúklingum en . 


mbl.is Heilbrigðiskerfið ræður vart við meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Hér er ég þó altént sammála þér. Það eru allir orðnir þreyttir á stofufangelsinu, en það virðist vera nauðsynlegt að takmarka ferðir fólks og að safnast sé saman í miklum mæli. Þannig dreifist veiran, held það sé ekki umdeilt.

Nauðsynlegt er auðvitað að grunnstoðir þjóðfélagsins virki og atvinnufyrirtækin láti fólk vinna heiman að, þegar það er hægt. Viðskiptafundir o.þ.h. fari sem mest fram á netinu og tilgangslausum mann(ó)fögnuðum sé haldið í algjöru lágmarki.

Theódór Norðkvist, 23.2.2021 kl. 22:39

2 identicon

Smá innsláttarvilla Ómar. Tékkar eru 30 sinnum fleiri en Íslendingar, eins og þú notar greinilega í samanburði á dauðsföllum, ekki 20 sinnum.

Stefán (IP-tala skráð) 25.2.2021 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband