29.3.2021 | 21:56
Þarna gaus heldur betur, meðal annars fyrir rúmum þúsund árum.
Lambafell er aðeins fáa kílómetra frá Hellisheiðarvirkjun og eldstöðvunum, sem eru beinlínis á nýtingar- og uppdælingarsvæði þeirrar virkjunar.
Þar runnu hraun og fór einn hraunstraumurinn alveg niður í Ölfus þegar verið var að setja kristni í lög á Alþingi og heiðnir menn sögðu, að hraunrennslið í áttina að Hjalla þar sem einn hinna hálfkristnu goða bjó sýndi að goðin væru reið.
Og svar Snorra goða varð fleygt: "Hverju reiddust goðin þegar hraunið brann er nú stöndum vér á?"
Ef nú er að renna upp nýtt tímabil upp á nokkrar aldir með umbrotum á Reykjanesskaga, getur allur skaginn verið undir, eins og sjá má á góðu korti, sem birt var af honum á mbl.is fyrir nokkrum dögum.
Skoða skjálftavirkni undir Lambafelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kristnitökuhraunið kom úr sprungunni sem er á miðri Hellisheiðinni og sú gjá sést vel frá þjóðveginum. Það sagði mér Árni Snævarr verkfræðingur.
Halldór Jónsson, 29.3.2021 kl. 22:33
Leitahraunið fyrir neðan Lambafell er 3500 ára gamalt er ekki svo?
Halldór Jónsson, 29.3.2021 kl. 22:55
Ójú, svo mun það vera.
Ómar Ragnarsson, 30.3.2021 kl. 00:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.